Da Vinci freskur finnast 20. janúar 2005 00:01
Löngu týnd vinnustofa og íbúð lista- og uppfinningamannsins Leonardos da Vincis er fundin í Flórens á Ítalíu. Þar eru meðal annars freskur eftir da Vinci sem enginn vissi að væru til. Það geta líklega flestir verið sammála um að Leonardo da Vinci hafi verið einn af mestu listamönnum og uppfinningamönnum sögunnar. Það er því engin furða þótt Ítalir séu uppnumdir yfir þessum fundi. Það voru tveir listfræðingar og arkitektar sem fundu húsnæðið sem er sambland af vinnustofu og íbúð í hinu helga Boðunarklaustri í Flórens en klaustrið er helgað boðunardegi Maríu meyjar. Ítalirnir fundu stigagang sem liggur frá klaustrinu og upp í vinnustofuna en stigaganginum hafði verið lokað við endurbyggingu klausturins einhverntíma fyrr á öldum. Það kann að virðast undarlegt í dag að nokkrum skyldi detta í hug að loka fyrir vinnustofu Leonardos da Vincis. Þá ber að hafa í huga að da Vinci var uppi á árunum 1452 til 1519 og var ekki metinn að verðleikum fyrr en löngu eftir sinn dag. Tímans tönn hefur nagað freskur og önnur verk sem eru í vinnustofunnu en ein freskan er sláandi lík Boðuninni, hinu fræga verki da Vincis sem geymt er í Uffici-safninu í Flórens. Robert Maneslachi listfræðingur segir að þarna sjáist í fyrsta sinn fuglar fullir af krafti, dýr sem séu algerlega ljóslifandi og minni okkur á rannsóknir Leonardos á fljúgandi fuglum. Höfundur nýrrar bókar um Mónu Lísu, Gherardini, segir að Leonardo hafi að öllum líkindum hitt hana í kirkju Boðunarklaustursins þar sem fjölskylda eiginmanns hennar, Francescos del Giocondo, átti kapellu. Finnendurnir tveir segja ekki hægt að útiloka að myndin af Mónu Lísu hafi verið máluð í klaustrinu en þeir hafi til þessa ekki fundið neitt sem sanni það. Eins og nærri má geta verða þessi nýfundnu húsakynni meistarans rannsökuð vandlega næstu árin.
Erlent Fréttir Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Fleiri fréttir Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Sjá meira