Erlent

Tveggja manna leitað í líkmálinu

Lögreglan í Danmörku leitar nú tveggja manna í tengslum við morðið á leigubílstjóranum um páskana en lík hans fannst niðurbútað í Kaupmannahöfn. Talið er að annar mannanna sé dönskumælandi maður frá Asíu og hinn er talinn vera Bandaríkjamaður, að því er fram kemur í vefútgáfu Politiken í morgun. Vitni segja að hinn myrti hafi sést á gangi með mönnunum frá bar í Kaupmannahöfn, nóttina áður en líkamshlutar mannsins fundust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×