Erlent

Söguleg stund á ferli páfa

Í fyrsta sinn á aldarfjórðungs embættisferli messaði Jóhannes Páll páfi ekki á páskadag. Hann kom ekki upp skiljanlegu hljóði þegar hann reyndi að ávarpa fjöldann við Vatíkanið í morgun. Vatíkanið hefur ekki gefið út neinar yfirlýsingar um heilsu páfans nýlega en síðastliðna tvo mánuði hefur hann verið 28 daga á sjúkrahúsi. Hann er nú 84 ára og þjáist af Parkinsons-veiki og mikilli gigt, auk öndunarerfiðleika. Vegna veikindanna hafa kardinálar annast allar messur og kirkjulegar athafnir Páfagarðs um páskana, þar með talið páskamessuna í morgun. Það er í fyrsta sinn síðan Jóhannes Páll páfi tók við embætti fyrir 26 árum sem hann tekur ekki þátt í páskamessunni. Hann kom hins vegar út í glugga og fyrir neðan höfðu tugþúsundir safnast saman. Var hljóðnemi færður að vitum hans en þaðan heyrðust hins vegar aðeins óljós hljóð en engin skiljanleg orð. Sumir áhorfendanna brustu í grát en að lokum gerði hann krossmark með höndum sínum og hljóðneminn var fluttur á brott.
MYND/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×