Danska lögreglan engu nær 27. mars 2005 00:01
Lögreglan í Kaupmannahöfn er engu nær um af hverjum líkamshlutarnir eru sem fundust við hliðina á ruslagámi í gærmorgun, þrátt fyrir fjölda vísbendinga frá íbúum á svæðinu. Talið er að líkamshlutarnir séu af karlmanni en beðið er niðurstöðu réttarmeinafræðinga.Tveir afskornir fætur og afskorin hönd fundust við ruslagám á Klerkagötu, innarlega í Kaupmannahöfn, um fimmleytið í gærmorgun. Fjöldi fólks hafði þá gengið fram hjá líkamshlutunum í þeirri trú að þetta væru einungis leifar af útstillingargínu. Lögreglan grunar ofbeldisverk og nefnir sem dæmi að áverkar á líkamshlutunum séu þess háttar að þeir geti ekki verið úr líkhúsi. Fingrafar af handleggnum hefur ekki leitt lögreglu á sporið þar sem það stemmdi ekki við fingraför í skrám lögreglu. Nú er beðið niðurstöðu réttarmeinafræðinga og í framhaldi verða DNA-sýni borin saman við upplýsingar um horfnar persónur í Danmörku, og eins við gagnabanka Interpol, um útlendinga sem saknað er. Fjöldi vísbendinga hefur borist frá íbúum á svæðinu en án árangurs. Lögreglan biðlar enn til almennings og segir málið ekki upplýsast nema með aðstoð hans. Fjöldi hjólfara og fótspora gefa litlar vísbendingar þar sem mannmargt var á þessum slóðum. Talið er að líkamshlutarnir séu af karlmanni en hvorki aldur né þjóðerni hafa verið staðfest. Þetta er annað voðaverkið sem kemur upp í Danmörku á skömmum tíma en fyrir nokkrum vikum myrti karlmaður tvö börn sín vegna afbrýðissemi út í konu sína sem ætlaði að skilja við hann.
Erlent Fréttir Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Sjá meira