Femínistar fengju sjö prósent 7. apríl 2005 00:01
Nýja femínistaframboðið í Svíþjóð, sem Gudrun Schyman og samherjur hennar hafa boðað, myndi fá um sjö af hundraði atkvæða ef þingkosningar færu fram nú. Slíkt fylgi myndi skila flokknum 24-27 þingsætum. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar, sem gerðar voru eftir að tilkynnt var um framboðið á mánudaginn. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, sem viðhorfsrannsóknafyrirtækið Temo gerði og birtar eru í Dagens Nyheter, tæki nýja framboðið megnið af fylginu frá Vinstriflokknum, sem Schyman fór fyrir í tíu ár uns hún hrökklaðist frá vegna hneykslismála fyrir tveimur árum. Nær allir svarendur í könnuninni, sem tóku því líklega að kjósa nýja kvennalistann, koma úr hópi stuðningsmanna hinna vinstriflokkanna. Rúmlega fjórðungur kjósenda Vinstriflokksins er í þessum hópi, svo og 17 prósent fylgismanna sænska græningjaflokksins. Fimm af hundraði þeirra sem kusu Jafnaðarmannaflokkinn í síðustu kosningum segjast hneigjast til stuðnings við femínistaflokkinn. Að öllu jöfnu verður næst kosið til sænska þingsins í september 2006.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira