Lögreglustöð vantar í Kristjaníu 23. apríl 2005 00:01
Sér lögreglustöð verður að vera í fríríkinu Kristjaníu, segja þingmenn dönsku stjórnarandstöðunnar í framhaldi af skotárás þar á fimmtudag. Hugmyndin hefur verið á langtíma áætlun lögreglunnar, en yfirmenn lögreglunnar í Kaupmannahöfn eru ósammála um ágæti hennar. Sighvatur Jónsson er í Danmörku. Einn lést og fimm særðust í skotárás í Pusher-stræti í Kristjaníu á fimmtudag. Árásin var skipulögð en fimm menn skutu úr bíl minnst þrjátíu og fimm skotum, m.a. af vélbyssum. Danska lögreglan veit ekki með vissu hverjir voru að verki en rannsóknin beinist einna helst að átökum um hassmarkaðinn í fríríkinu. Dagblaðið Politiken skrifar í morgun um hugmynd frá tveimur flokkum í stjórnarandstöðunni um að auka þurfi eftirlit á svæðinu með sér lögreglustöð, en framtíð Kristjaníu er einmitt til umræðu þessa dagana á danska þinginu. Hugmyndin hefur verið á langtímaáætlun lögreglunnar. Yfirmaður innan lögreglunnar í Kaupmannahöfn sagði við danska ríkisútvarpið í morgun að hann óttaðist ekki að slík stöð myndi virka ögrandi á íbúa Kristjaníu, enda þurfi stöðin ekki að vera staðsett innan marka fríríkisins. Annar yfirmaður í lögreglunni segir hið gagnstæða við Politiken: að hann óttist að slík stöð muni senda röng skilaboð til íbúa Kristjaníu, sem bæti ekki ástandið. Yfirmaður rannsóknar málsins hefur sagt í fréttum að líklega hafi verið um skiplagða hefnd að ræða sem tengja megi við átök sem áttu sér stað kvöldið fyrir árásina. Hann vill þó ekki segja með vissu að málið tengist átökum um hassmarkaðinn. Jyllands Posten skrifar í morgun að hassstríðið í Kristjaníu snúist um allt að eina milljón danskra króna, um ellefu milljónir íslenskar. Blaðið segir þrjá hópa bítast um markaðinn; hóp innflytjenda úr Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn, meðlimi í mótorhjólagengi og upphaflegu hasssalana í fríríkinu. Átökin eru sögð hafa versnað eftir rassíu lögreglunnar fyrir ári sem þykir hafa dregið hassmarkaðinn niður á harðara plan undirheimaviðskipta. Sá sem lést í árásinni var 26 ára og er sagður hafa verið sendill fyrir hasssölumenn. Athöfn var haldin til minningar um hann í Kristjaníu í gærkvöldi, og tóku um hundrað manns þátt í henni. Við athöfnina sagði presturinn að áður en lögreglan rýmdi Pusher-stræti fyrir ári hafi hassviðskipti farið fram á öruggari hátt. Nú séu þau ofurseld hörðu ofbeldi.
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Fleiri fréttir Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Sjá meira