Myrti níu og stytti sér svo aldur 22. mars 2005 00:01
Unglingspiltur gekk bersersksgang á verndarsvæði indíána í Minnesotaríki í Bandaríkjunum í gær og myrti níu manns áður en hann stytti sér aldur. Flest fórnarlambanna voru skólafélagar piltsins en auk þess banaði hann ömmu sinni og afa. Þetta er versta tilræði sinnar tegundar síðan Columbine-morðin áttu sér stað árið 1999 en þá lágu 13 manns í valnum.. Sorgin vitjaði verndarsvæðis indíána við Red Lake í Minnesota í fyrrakvöld þegar unglingspiltur, Jeff Weise að nafni, myrti níu manns áður en hann banaði sjálfum sér. Fyrst til að falla fyrir hendi Weise voru amma hans og afi en talið er að pilturinn hafi stolið skotvopnunum sem notuð voru við drápin frá afa sínum en hann var fyrrverandi lögreglumaður. Næst lá leiðin í grunnskóla staðarins þar sem Weise stundaði nám. Fyrst skaut hann öryggisvörð en svo braut hann sér leið inn í kennslustofu þar sem hann myrti kennara og fimm nemendur. Þegar lögregla kom á vettvang kom til skotbardaga milli hennar og piltsins og svo virðist sem hann hafi svipt sig lífi áður en náðist að yfirbuga hann. Fimmtán skólabörn særðust í skothríðinni. Nemendur og kennarar í skólanum voru að vonum miður sín vegna atburðarins. Sondra Hegstrom, sjónarvottur að ódæðinu, sagði að Weise hefði virst viti sínu fjær þegar hann kom á vettvang og morðin hefðu verið algerlega handahófskennd. "Hann glotti og veifaði til þeirra sem hann miðaði á, síðan sneri hann sér við og skaut einhvern annan. Ég horfði í augun á honum og tók síðan til fótanna." Ekkert er vitað um ástæður Weise fyrir þessu voðaverki. Honum er lýst sem einfara sem hinir krakkarnir stríddu. Faðir hans stytti sér aldur fyrir nokkrum árum og móðir hann liggur á hjúkrunarheimili með alvarlegan heilaskaða. Verndarsvæðið við Red Lake er um 400 kílómetra norður af Minneapolis. Þar búa fimm þúsund indíánar af Chippewa-ættbálknum og er fátækt almenn á meðal þeirra. Skotárásin í fyrradag er sú versta sinnar tegundar síðan tveir piltar í Littleton í Colorado drápu tólf skólasystkini sín og kennara í Columbine-skólanum í apríl árið 1999
Erlent Fréttir Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira