Fjölmenn mótmæli víða um heim 19. mars 2005 00:01
Það var ekki bara á Íslandi sem þess var minnst í dag að tvö ár eru liðin frá innrásinni í Írak. Tímamótanna var minnst um allan heim og fjölmennust urðu mótmælin í þeim löndum sem eiga hermenn í Írak. Andstaða almennings við stríðið í Írak virðist síst í rénun ef marka má viðbrögð fólks og mótmæli í dag. Tugþúsundir manna mótmæltu í Japan, Ástralíu og Ítalíu sem eiga hermenn í Írak og mótmæli voru einnig áberandi í Bretlandi og Bandaríkjunum. George Bush Bandaríkjaforseti kom ekki fram opinberlega af þessu tilefni í dag en hann fjallaði um Írak í vikulegu útvarpsávarpi sínu, ræddi um vel heppnaðar kosningar í landinu og sagði að í vinda frelsis og lýðræðis blása um öll Miðausturlönd í kjölfar innrásarinnar. Hann sagði að á þessum degi fyrir tveimur árum hefðu Bandaríkjamenn hafið aðgerð til þess að frelsa Írak í því skyni að afvopna grimma stjórn og frelsa þjóðina og vernda heiminn gegn alvarlegri hættu. Vegna aðgerðanna væri frelsið að skjóta rótum í Írak og bandaríska þjóðin öruggari. Næstu daga kafar fréttastofa Stöðvar 2 ofan ástandið í Írak og afleiðingar stríðsins. Leitað verður svara við þeirri spurningu hvort stríðið hafi markað upphafið að einhvers konar frelsis- og lýðræðisbylgju sem nú breiðist út frá Írak til nágrannalandanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Sjá meira