Sprenging í kornframleiðslu 24. september 2005 00:01
Uppskera á korni hér á landi hefur meira en tuttugufaldast frá árunum 1991-1993 og ekkert lát virðist á aukningunni. Í ár er talið að bændur hafi sáð 3300 hekturum af korni, samanborið við 150 árið 1991 og búist er við að uppskeran verði um 11.000 tonn í ár, en hún var rúm 500 tonn fyrir fjórtán árum. Nánast allt korn sem ræktað er hér á landi er bygg, en það er sú korntegund sem skemmstan tíma þarf til að þroskast. Þó er eitthvað um að bændur hafi sáð hveiti. "Þetta hefur aukist jafnt og þétt um tíu til fimmtán prósent á ári og ég býst ekki við öðru en að það haldi áfram," segir Jónatan Hermannsson, tilraunastjóri á Korpu, en þar hefur Rannsóknastofnun landbúnaðarins lengi stundað tilraunir með kornrækt. Hann á ekki von á neinum stórum stökkum. "Bæði er bændum sem rækta korn að fjölga og menn eru líka að rækta meira hver fyrir sig." Að sögn Hermanns eru um 50 prósent kornakra á Suðurlandi, rúm 30 prósent á Norðurlandi, um 15 prósent á Vesturlandi og fimm prósent á Austurlandi. Ræktunin fylgir nokkurn veginn mjólkurframleiðslunni. "Þetta er enn sem komið er fyrst og fremst notað sem fóður fyrir mjólkurkýr, bændurnir rækta þetta fyrir þær." Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri búvélafyrirtækisins Jötunn Vélar á Selfossi, spáir því að kornrækt hér á landi muni margfaldast á næstu árum. "Við finnum fyrir mjög miklum áhuga á kornrækt meðal bænda," segir Finnbogi. "Til dæmis seldum við þrjár nýjar þreskivélar í ár og við erum alltaf að selja meira og meira af kornsniglum, kornvölsum og fleiru í kringum þetta." Finnbogi segir þennan áhuga ekki bundinn við bændur í einstökum landshlutum heldur finni sölumenn fyrir honum um allt landið. Þá hefur það stóraukist síðustu ár að bændur þurrki korn frekar en að súrsa það. Jónatan giskaði á að nú væri um helmingur alls korns þurrkaður, en lengi vel var nánast öll kornframleiðsla súrsuð.
Fréttir Innlent Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira