Sérkennilegar kveðjur 23. janúar 2005 00:01 "
Ég veit ekki betur en það standi fyrir dyrum fundur borgarstjóra með bæjarstjóra í Kópavogi þar sem þetta mál verður rætt og mér finnst þetta sérkennilegar kveðjur fyrir þann fund," segir segir Dagur B. Eggertsson, formaður Skipulagsráðs Reykjavíkur, um þann gjörning Kópavogsbæjar að senda iðnaðarráðuneytinu lögnámsbeiðni til að geta farið með vatnslögn frá borholum í Vatnsendakrikum yfir land Reykjavíkurborgar. Dagur segir að málið sé í faglegu ferli innan óbyggðanefndar þar sem allir málsaðilar gátu lagt fram gögn sín og kröfur. "Þangað til nefndin fellir úrskurð sinn eru svona kröfur ótímabærar." Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, hefur ekki vandað borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans kveðjurnar vegna málsins og sagði meðal annars í viðtali við blaðið í gær að þeir þurfi að leita sér sálfræðiaðstoðar vegna minnimáttarkenndar gagnvart Kópavogi. Dagur segir að það sé þekkt að innbæld reiði geti brotist út á ýmsan hátt, þar á meðal gífuryrðum en í þessu máli hafi stóru orðin ekki fallið af hálfu Reykjavíkurborgar. Þá telur Dagur að Gunnar sé að beina sjónum frá forsögu málsins sem sé sú að Kópavogsbúum hafi á sínum tíma verið boðið ódýrt og gott vatn frá Orkuveitu Reykjavíkur. Gunnar hafi ekki viljað una því og áfrýjað málinu í tvígang til sérstakrar matsnefndar sem leiddi til verðhækkunar í bæði skiptin. "Það er því rétt hjá honum að Kópavogsbúar eru að greiða meira fyrir vatnið en ástæða er til en það er út af hans eigin þrákelkni og óþarfa tortryggni gagnvart Orkuveitunni," segir Dagur. Flosi Eiríksson, bæjarráðsmaður í Kópavogi, segir að innan bæjarráðs Kópavogs séu allir sammála um að Vatnsendakriki sé í eigu bæjarins og málið heyri ekki undir kröfulýsingu óbyggðanefndar sem eigi því ekki að fjalla um málið. Hann segir hins vegar að málflutningur Gunnars I. Birgissonar séu Kópavogsbúum ekki til framdráttar og málið eigi að leysa í samvinnu við Reykjavíkurborg. "Þessi fordómafullu og afturhaldssömu ummæli Gunnars eru honum ekki til sóma," segir Flosi. Flosi EiríkssonDagur B. Eggertsson
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira