Átján fíkniefnamál í Eyjum 31. júlí 2005 00:01
Töluverð rigning var á Þjóhátíðargestum en um fjögurleytið í nótt stytti upp og er komið hæglætisveður í dalnum. Lögreglumenn í Vestmannaeyjum áttu rólega nótt. Nú hafa alls komið upp átján fíkniefnamál í Eyjum og hefur lögregla haldlagt mest af amfetamíni, en einnig hafa fundist E-töflur og LSD auk kannabisefna. Eru fíkniefnamál þó mun færri en í fyrra þrátt fyrir að mun meira fíkniefnaeftirlit sé á svæðinu og hefur aldrei verið eins öflugt. Í morgun voru fangageymslur tómar og er það til marks um hve rólegt er yfir gestum Þjóðhátíðar að sögn lögreglunnar í Eyjum. Þó kom upp eitt ölvunarakstursmál í nótt. Að sögn hatíðarhaldara er sami fjöldi í Eyjum og hefur verið um helgina, á milli 9 og 10 þúsund manns, en það er að bætast í frá Reykjavík og Bakka þar sem tilboðsverð er á ferðum síðasta daginn samkvæmt hefð. Stærsta númerið í kvöld er Brekkusöngurinn með Árna Johnsen auk þess sem Bubbi Morthens mun stíga á stokk. Á Akureyri eru um 10-12 þúsund gestir að sögn hátíðarhaldara. Ekkert nýtt hefur komið upp á að sögn lögreglu og fíkniefnamálin ellefu og meiðslin eftir slagsmálin í nótt, þar sem fimm voru fluttir á slysadeild, voru minniháttar. Skýjað er í bænum en hlýtt og nokkrir dropar féllu í morgun. Á Neskaupsstað er sami fjöldi og verið hefur , 2-3 þúsund manns, og segir lögregla ekkert að frétta fyrir utan smá umferðartafir. Veður er þokkalegt og 13 stigi hiti Í Galtalæk er sömu sögu að segja en þar eru nú um 2500 manns. Bongóblíða hefur veruð fyrir austan alla helgina Á Álfaborgarséns í Borgarfirði eru nú um 3-400 manns og verður varðeldur og hópsöngur í kvöld. Annað eins var í Atlavík þar sem allt er troðið, 4-500 manns voru í Svartaskógi sl. nótt og um 200 í Hallormsstað. Á Síldarævintýrinu á Siglufirði hefur verið svipaður fjöldi alla helgina, um 3000 manns, og ekkert teljandi vesen á fólki. Mígandi rigning hefur verið við og við í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira