Ótti í aðdraganda kosninga í Írak 22. janúar 2005 00:01
Ótti einkennir lífið í Írak þessi dægrin, í aðdraganda frjálsra kosninga sem eiga að fara þar fram eftir rúma viku. Jón Ársæll Þórðarson er staddur þar og segir viðmælendur sína of hrædda til að fara á kjörstað. Jón Ársæll segir það fari ekki fram hjá neinum í Bagdad að kosningar séu á næsta leiti. Það séu hins vegar ekki kosningasamkomur og útfundir sem hann verði mest var við heldur óttinn og óvissa fólks um framtíðina. Fólk sé hrætt við að kjósa og fjölmargir þori ekki á kjörstað vegna þeirra ógnaraldar sem ríki í landinu. Fylgismönnum Saddams Husseins, sem áður hafi ráðið ríkjum, hafi tekist með skæruhernaði og gíslatökum að vekja slíkan ugg í brjóstum fólks að þori ekki að láta skoðanir sínar í ljós. Jón segir að víða sé búið að rífa niður allar veggmyndir og áróður í tengslum við komandi kosningar nema þær sem hvetji fólk til að kjósa ekki. Þá gangi þær sögur á götunum að andstæðingar kosninganna ætli að efna til sprengjuhernaðar um næstu helgi þar sem fólk ætli að sprengja sjálft sig í loft upp í fjölmenni til þess að valda sem mestum skaða og auka á ógnina og ringulreiðina. Innanríkisráðherra Íraks sagði á fundi fyrr í dag að allt yrði gert til að tryggja öryggi fólks á kjörstað en það kemur í hlut írakskra öryggissveita að sjá um það.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira