Kennarar óánægðir með vinnuveitand 23. september 2005 00:01
Í vinnustaðagreiningu á grunnskólum og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur kemur fram að 26 prósent svarenda sögðust ekki ánægð með Reykjavíkurborg sem vinnuveitanda og eru starfsmenn grunnskóla borgarinnar því óánægðari með vinnuveitanda sinn en starfsmenn annarra fyrirtækja. Óánægjan hefur aukist frá 2002 og eru kennarar óánægðri en aðrir starfsmenn skólans. Þá kemur einnig fram að starfsfólk grunnskóla og Fræðslumiðstöðvar er ánægðari með ýmislegt sem snýr að vinnuumhverfi og vinnuanda en starfsmenn samanburðarfyrirtækja. Heildarniðurstaðan fyrir grunnskólana er heldur betri en hjá öðrum fyrirtækjum að jafnaði. Einnig er heildarniðurstaðan nokkuð betri en í samskonar greiningu sem framkvæmd var árið 2002. Gerður Óskarsdóttir, sviðstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, segist vera ánægð með niðurstöður greiningarinnar, en að sjálfsögðu komi fram þættir sem þyrfti að vinna betur í. Sú fullyrðing sem best kemur út að þessu sinni er hvort starfsmenn grunnskóla og fræðslumiðstöðar telja sig leggja mikið á sig til að þjóna nemendum og foreldrum þeirra sem best. Sú fullyrðing sem fær lægstu einkunnina er hvort laun eru sanngjörn miðað við ábyrgð í starfi. Þá er áberandi í greiningunni að starfsmenn í borgarhluta 1, þar sem finna má Grandaskóla, Hagaskóla, Melaskóla og Vesturbæjarskóla, hafa neikvæðasta matið á því hversu vel starfsmönnum finnst að vinnustaðnum sé stjórnað, markmiðin eru sögð óskýrust, þar telja starfsmenn vera mesta ágreininginn milli starfsmanna og starfsandinn er lakastur. Af 107 spurningum og fullyrðingum í könnuninni var 22,1 prósent svara greint svokallað í styrkleikabil sem er jákvætt fyrir starfsemi skólanna, 41,6 prósent svara voru greind í starfshæft bil sem hvorki er talið hvetja né letja starfsfólk við dagleg störf. 36,4 prósent svara voru greind í aðgerðabil, sem er neikvætt fyrir starfsemi skólanna. Þátttakendur voru starfsmenn fræðslumiðstöðva, grunnskóla og sérskóla Reykjavíkur. Gallup gerði vinnustaðagreininguna í apríl og maí á þessu ári.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Sjá meira