Barðist fyrir pólitísku lífi sínu 25. apríl 2005 00:01
Einn litríkasti stjórnmálamaður Evrópu barðist fyrir pólitísku lífi sínu í beinni sjónvarpsútsendingu í morgun. Joscka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, bar þá vitni fyrir rannsóknarnefnd þingsins, en mikil spenna ríkti vegna vitnisburðarins. Vikum og mánuðum saman hefur verið deilt um vegabréfsáritunarhneykslið svokallaða í Þýskalandi og það er einkum ímynd Joscka Fischers, einhvers litríkasta stjórnmálamanns Evrópu, sem hefur borið skaðann. Málið snýst um skrifræðisreglur innan þýsku utanríkisþjónustunnar, sem Fischer ber meginábyrgðina á að voru settar. Þær leiddu til þess að þeir sem sóttu um vegabréfsáritun, einkum í Austur-Evrópu og þá helst í Úkraínu, þurftu hvorki að sýna fram á heimboð eða dvalarstað í Þýskalandi né ferðatryggingar. Þetta er talið hafa leitt til þess að hundruð þúsunda komust til Þýskalands og fjöldi sneri aldrei aftur heim. Margir starfa svart, aðrir eru í glæpastarfsemi og dæmi eru um að ungar konur hafi verið seldar í vændi. Fischer kveðst ábyrgur. Hann sagði að þegar hann undirritaði gjörning viðurkenndi hann hann og þannig yrði hann að opinberri tilskipun. Þá væri hægt að svara ýmsum spurningum. Fischer spurði hver hefði skrifað: „Ef vafi leikur á sekt skal hann vera hinum ákærða í hag?“ og svaraði sjálfur að á þeim tímapunkti sem hann hafi samþykkt hann hafi hann gert það. Vitnirburðar Fischers var beðið með mikilli eftirvæntingu en þetta er í fyrsta sinn sem viðburður af þessu tagi er sýndur beint í þýsku sjónvarpi. Búist var við eldglæringum og átökum sem létu þó á sér standa. Skyndikannanir þýskra fjölmiðla sýna að tveir þriðju áhorfenda voru óánægðir með frammistöðu Fischers, en þriðjungur sáttur.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira