Versta lestarslys í 40 ár í Japan 25. apríl 2005 00:01
Fimmtíu hið minnsta týndu lífið þegar farþegalest fór út af sporinu á háannatíma skammt frá borginni Osaka í Japan. Lestin brunaði beint inn í hús skammt frá teinunum. 300 manns slösuðust. Þetta er versta lestarslys í Japan í fjörutíu ár. Lestin, sem flutti fólk til vinnu, brunaði út af sporinu og lenti á fullri ferð ofan í bílakjallara húss sem stendur aðeins fáeina metra frá teinunum. Þrír lestarvagnar fóru út af sporinu og einn þeirra krumpaðist svo illa saman við áreksturinn að hann er nú helmingi styttri en áður. 580 farþegar voru um borð og fimmtíu fórust. 300 eru á sjúkrahúsum, misilla á sig komnir. Snemma í morgun var eitthvað af fólki enn fast undir braki lestarinnar og meira en hundrað björgunarmenn unnu að því að ná því úr brakinu. Talsmenn lestafyrirtækisins segja ekkert liggja fyrir um ástæður slyssins en að reiknilíkön sýni að lestin hefði þurft að vera á helmingi meiri hraða en leyfilegt er á slysstaðnum til þess að fara út af sporinu. Farþegar, sem japanskir fjölmiðlar hafa rætt við, segja einmitt að svo hafi virst sem lestin hefði aukið hraðann skömmu fyrir slysið.
Erlent Fréttir Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira