Yfirlýsing Össurar sögð heimskuleg 17. júlí 2005 00:01
Oddvitar flokkanna sem standa að Reykjavíkurlistanum gefa lítið fyrir þá skoðun Össurar Skarphéðinssonar að Samfylkingin eigi að bjóða fram R-lista hvort sem samstarfsflokkarnir taki þátt í framboðinu eður ei. "Mér finnst yfirlýsing Össurar í raun vera heimskuleg, það er í mínum huga ljóst að það verður ekkert sem heitir R-listi nema að honum standi flokkarnir sem stóðu að honum síðast," segir Árni Þór Sigurðsson oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður sagði í Fréttablaðinu í gær að hann væri þeirrar skoðunnar að Samfylkingin ætti undir öllum kringumstæðum að bjóða fram undir merkjum Reykjavíkurlista, hvort sem samstarfsflokkarnir vildu vera með eða ekki. Árni Þór segist undrandi á þeim misvísandi skilaboðum sem koma úr herbúðum Samfylkingarinnar þar sem allur gangur virðist vera á því hvað fólk ætlist fyrir með framtíð R-listasamstarfsins. Hann segir að honum virðist Samfylkingin hálfhölt í þessum efnum. Eins segist Árni Þór vera þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að leyfa viðræðunefndinni sem hefur umræður um áframhaldandi samstarf á sínu borði að fá vinnufrið til að ljúka því starfi, enda hafi hún fullt umboð til þess. Alfreð Þorsteinsson oddviti Framsóknarmanna segir eðlilegt að menn spari yfirlýsingarnar á meðan málið er á borði viðræðunefndarinnar, þar sé málið í ákveðnu ferli og rætt um samstarf á sama grunni og verið hefur. Á meðan verið sé að ræða þessi mál ætlar hann í það minnsta sjálfur að spara digurbarkalegar yfirlýsingar. Stefán Jón Hafstein, oddviti Samfylkingarinnar, í borgarstjórn tekur í sama streng og segir umboð viðræðunefndarinnar skýrt og að það beri að virða. Umboð hennar komi úr baklandi flokkanna og því ekki eðlilegt að aðrir skipti sér að því. Fulltrúar viðræðunefndarinnar hafa lýst því yfir að þeir muni ekki tjá sig frekar um málið við fjölmiðla að svo stöddu. Nefndin er nú í stuttu sumarfríi en síðasti fundur var haldinn fyrir réttri viku síðan. Búist er við því að nefndin komi aftur saman fljótlega í næsta mánuði og að línurnar skýrist fljótlega upp úr því. Skiptar skoðanir virðast innan allra flokkana um það hvort halda beri samstarfinu áfram.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira