Stærsta farþegaþota sögunnar 27. apríl 2005 00:01
Stærsta farþegaþota sem smíðuð hefur verið, Airbus A380, flaug jómfrúarflug sitt í gær. Kostnaður við þróun og smíði vélarinnar er ríflega 800 milljarðar króna og er óvíst hvort framleiðslan muni nokkurn tímann borga sig. Yfir 30.000 manns fylgdust með Airbus A380 risaþotunni hefja sig til flugs í fyrsta sinn frá Blagnac-flugvelli í útjaðri Toulouse í Frakklandi og gleði fólksins þegar vélin lenti heilu og höldnu fjórum tímum síðar var óblandin. Engir farþegar voru þó um borð að þessu sinni heldur einbeitti áhöfnin sér að því að kanna flughæfni þotunnar til hlítar. Til vonar og vara voru allir með fallhlífar á bakinu. Þúsundum mælitækja hafði verið komið fyrir í vélinni en auk þess var farangursrýmið fullt þannig að aðstæður væru allar sem raunverulegastar. Airbus A380 er sannkölluð risaþota. Hún er 73 metrar á lengd og vegur fullhlaðin 560 tonn. Staðalútgáfa hennar rúmar 555 farþega en hægt er að breyta farþegarýminu þannig að allt að 840 komist þar fyrir. Forsvarsmenn Airbus-fyrirtækisins voru hinir ánægðustu svo og ráðamenn í löndunum sem aðild eiga að verkefninu. "Þetta eru frábærar fréttir fyrir Evrópusamvinnu á sviði iðnaðar," sagði Jacques Chirac Frakklandsforseti, eflaust góðum fréttum feginn mitt í kosningabaráttunni um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins. Flugið markar endalok ellefu ára þróunarstarfs sem hefur kostað ríflega 800 milljarða króna. Nálega þriðjungur þess er greiddur af skattfé þjóðanna sem að verkefninu standa. 154 pantanir hafa þegar borist en talsvert fleiri þarf til að verkefnið standi undir kostnaði. Enda þótt A380 sé mun hagkvæmari í rekstri en júmbóþotan Boeing 747 þá benda sérfræðingar á að tími slíkra risaþotna sé sennilega liðinn. Framtíðarmöguleikarnir liggi í smærri en langdrægari þotum á borð við Boeing 787 Dreamliner. Yfir 287 slíkar vélar hafa verið pantaðar af fjölda flugfélaga og er Icelandair þar á meðal. Vinsældirnar ættu að vera Boeing-fyrirtækinu kærkomnar því í gær tilkynnti bandaríski flugvélarisinn að hagnaður fyrirtækisins hefði dregist saman um 14 prósent á fyrsta ársfjórðingi 2005.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Fleiri fréttir Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sjá meira