Havaxtarhvetjandi aðgerðir í ESB 23. mars 2005 00:01
Leiðtogar Evrópusambandsins luku í gær tveggja daga vorfundi sínum í Brussel með samþykkt um breytingar á svonefndum stöðugleikasáttmála Efnahags- og myntbandalagsins. Breytingunum var fagnað sem tímabæru tæki til vinna gegn niðursveiflunni í efnahagslífi kjarnaríkja evru-svæðisins, en þær veita stjórnvöldum aðildarríkjanna meiri sveigjanleika í framfylgd reglna sem eiga að tryggja að efnahagslegur grundvöllur evrunnar haldist stöðugur. En um leið og leiðtogarnir voru staðnir upp frá samningaborðinu varð opinber ágreiningur um túlkun niðurstöðunnar. Fulltrúar Belgíu, Lúxemborgar og Hollands sökuðu fulltrúa Þýskalands um að túlka nýju reglurnar einum of frjálslega. Þýsk og frönsk stjórnvöld höfðu þrýst harðast á um að slakað yrði á reglum stöðugleikasáttmálans, sem settu strangar hömlur við fjárlagahalla í hverju aðildarríki myntbandalagsins. Það voru einnig Frakkar og Þjóðverjar sem fengu því framgengt að áform um að opna fyrir samkeppni á sviði þjónustu á innri markaði Evrópu yrðu útvötnuð að nokkru leyti. Ákveðið var að taka áformin, þjónustutilskipunina svonefndu, til endurskoðunar. Fulltrúar Frakka, Þjóðverja og Svía voru samstiga í að krefjast trygginga fyrir því að hinar áformuðu umbætur myndu ekki grafa undan velferðarkerfinu með "félagslegum undirboðum". "Við verðum að gera hvort tveggja í senn, að opna markaðinn og sýna félagslega ábyrgð," sagði Gerhard Schröder Þýskalandskanslari eftir fundinn. José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagðist reiðubúinn til að "skoða breytingatillögur" við áformin með því að undanskilja pólitískt viðkvæm svið eins og skóla- og heilbrigðisþjónustu. Þjónustutilskipunin áformaða hefur að markmiði að stuðla að því að um 600.000 ný störf skapist í þjónustugeiranum á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Gagnrýnendur óttast að hún muni grafa undan félagslegum réttindum með því að heimila fyrirtækjum í löndum þar sem skattar eru lægri og launþegaréttindi minni að undirbjóða keppinauta í löndum þar sem fyrirtæki þurfa að axla þyngri kvaðir. Jacques Chirac Frakklandsforseti varð sérstaklega áhyggjufullur út af þessu máli vegna óvinsælda áformanna meðal franskra launþega, en þær eiga ótvírætt þátt í að grafa undan stuðningi franskra kjósenda við stjórnarskrársáttmála ESB, sem borinn verður undir þjóðaratkvæði þar í lok maí.
Erlent Fréttir Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Sjá meira