Krefjast 60 þúsund ára fangelsis 22. apríl 2005 00:01
Sextíu þúsund ára fangelsisvistar er krafist yfir mönnum sem komu að skipulagningu hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september. Engin fordæmi eru fyrir annarri eins öryggisgæslu og við dómhúsið í Madríd á Spáni í dag. Þetta eru stærstu réttarhöld sem haldin hafa verið í Evrópu yfir meintum hryðjuverkamönnum al-Qaida. Þrír mannanna eru sakaðir um að hafa komið að skipulagningu hryðjuverkaárásanna þann 11. september 2001. Þeir munu hafa átt fund með Mohammed Atta, einum flugmannanna, í júlí sama ár þar sem gengið var frá lokaskipulaginu. Krafist er tuttugu og fimm ára fangelsisvistar fyrir hvert fórnarlamba árásanna sem voru hart nær þrjú þúsund. Tuttugu og einn til viðbótar er sakaður um aðild að al-Qaida en Barakat Yarkas, meginsakborningurinn, mun hafa rekið eins konar liðssöfnunarstöð á Spáni árið 1995, þaðan sem ungir öfgamenn voru sendir í þjálfunarbúðir í Afganistan, Tsjetsjeníu, Bosníu og Indónesíu. Allir neita sakborningarnir sök. Osama bin Laden er einnig ákærður í málinu en spænsk lög leyfa ekki réttarhald að honum fjarverandi. Einn sakborninganna var fréttamaður hjá al-Jazeera og tók meðal annars viðtal við bin Laden skömmu eftir árásirnar. Eiginkona hans segir að hann sé sakaður um að hafa flutt 4000 bandaríkjadali til al-Qaida en þau hjónin hafi útskýrt hvaðan og hvert peningarnir fóru. Hún segir þetta pólitíska málsókn á hendur manni sínum fyrir að hafa sem blaðamaður flett ofan af voðaverkum Bandaríkjamanna í Afganistan og hitt Bin Laden. Öryggisgæslan við dómshúsið í Madríd er gríðarleg. Sjálft dómshúsið var byggt sérstaklega í útjaðri borgarinnar og á annað hundrað lögreglumenn eru gráir fyrir járnum við húsið. Sakborningarnir sitja á bakvið skothelt gler í réttarsalnum, þar eru tæki sem trufla sendingar rafmagnstækja til að útiloka fjarstýrðar sprengjur og þyrlur sveima yfir byggingunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Sjá meira