Gríðarleg öryggisgæsla á Spáni 22. apríl 2005 00:01
Gríðarleg öryggisgæsla er vegna réttarhalda yfir tuttugu og fjórum meintum hryðjuverkamönnum al-Qaida á Spáni. Krafist er sextíu þúsund ára fangelsis yfir hverjum þeirra. Réttarhöldin eru þau umfangsmestu gegn íslömskum öfgamönnum í Evrópu og er gert ráð fyrir að þau geti tekið allt að tvö ár. Á annað hundrað lögreglumenn eru gráir fyrir járnum við dómssalinn sem var byggður sérstaklega í útjaðri Madrídar. Sakborningarnir sitja á bakvið skothelt gler í réttarsalnum, þar eru tæki sem trufla sendingar rafmagnstækja til að útiloka fjarstýrðar sprengjur og þyrlur sveima yfir byggingunni. Meintur leiðtogi al-Qaida á Spáni svarar til saka ásamt tuttugu og þremur öðrum sem grunaðir eru um að hafa aðstoðað hryðjuverkamennina sem gerði árásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Þeim er gefið að sök af hafa átt fundi með mönnunum sem rændu flugvélunum. Fundurinn átti sér stað í Tarragona í júlí árið 2001 og þar var gengið frá lokaskipulagningu hryðjuverkaárásanna. Leiðtoginn, Imad Eddin Barakat Yarkas frá Sýrlandi, á yfir höfði sér 62.512 ára fangelsi verði hann sakfelldur fyrir hryðjuverkamorð, tuttugu og fimm ár fyrir hvert fórnarlamb árásanna. Hann á að hafa komið á fót eins konar liðssöfnunarstöð á Spáni árið 1995, þaðan sem ungir öfgamenn voru sendir í þjálfunarbúðir í Afganistan, Tsjetsjeníu, Bosníu og Indónesíu. Málið er runnið undan rifjum rannsóknardómarans Baltasars Garzon sem hefur rannsakað umsvif íslamskra öfgamanna í Evrópu frá því árið 1991.
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Fleiri fréttir Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Sjá meira