Fullkominn staður til rannsókna 22. ágúst 2005 00:01
Ísland er frábær staður til að þróa nýja tækni og gera tilraunir með aðferðir sem gætu skipt sköpum í flugumferðarstjórnun. Þetta segja sérfræðingar hjá NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, og MIT-háskólanum í Boston, sem ásamt Háskóla Íslands, vinna að verkefni um flugstjórn framtíðarinnar. Háskóli Íslands hefur um árabil, ásamt Flugmálastjórn Íslands, haft frumkvæði að rannsóknum á flugumferðarstjórnun og meðal annars þróað hugbúnað fyrir hermi, sem nýtist við ýmis konar prófanir. Háskólinn hefur einnig átt í samstarfi við MIT háskólann í Boston við að þróa rannsóknarverkefni, sem miðar að því að prófa nýjar aðferðir og framsetningu gagna við eftirlit og stjórnun flugumferðar, og kemur geimvísindastofnun Bandaríkjanna ennfremur að því verkefni. Með þróun frumgerðar að flugumferðarstjórnarkerfi, sem flugumferðarstjórar hjá Flugmálastjórn meta útfrá notkun og öryggi, er talið mögulegt að sjá fyrir vandamál sem upp koma í framtíðinni. John Hansman, prófessor við MIT í Boston, segir Ísland hafa miðlæga staðsetningu þar sem það er miðja vegu á milli ameríska og breskra flugkerfa og því er það fullkominn prófunarstaður til þess að prófa nýja tækni og starfshætti. Hann sagði samstarfið hafa staðið í nokkur ár með Háskóla Íslands og Flugmálastjórn við rannsóknir á atriðum sem snúa að hinum mannlega þætti. Nasa er að vinna að ýmsum tækniútfærslum í samvinnu við MIT og Flugmálastjórn Bandaríkjanna að skilvirkari flugumferðarstjórnun og tækniútfærslunarnar taka bæði til flugvéla og flugumferðarstjórnunar á jörðu niðri. Þessi samvinna kemur vel út hér og tilraunaumhverfið er einnig gott, sagði John Hansman að lokum.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Sjá meira