Vill helst komast til Íslands 22. ágúst 2005 00:01
Yfirvöld í Texas-ríki í Bandaríkjunum hafa gefið Aroni Pálma Ágústssyni, sem hefur verið í stofufangelsi síðustu ár, heimild til skólagöngu. Ríkisstjóraembættið í Texas hefur enn ekki svarað beiðnum stuðningsmannahóps Arons um heimfararleyfi til Íslands, en sex vikur eru frá því að svörum var lofað. Aron Pálmi fékk fyrir helgi margumbeðna heimild til að stunda nám við háskóla í Texas. Þegar hann var 11 ára framdi hann kynferðisbrot gegn yngri dreng og var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar af dómsvöldum í Texas. Hann afplánaði sjö ár í rammgerðu fangelsi en var svo færður í stofufangelsi fyrir tveimur og hálfu ári og má ekki fara út fyrir hússins dyr nema hafa staðsetningartæki bundið um ökklann. Aron Pálmi lauk fyrir löngu inntökuprófi í háskóla og hefur margsinnis sótt um leyfi til skólagöngu, en jafnan verið synjað. Fyrr í sumar var honum neitað um að stunda heilsurækt, þar sem í því gæti falist skemmtun. Nú fær Aron hins vegar að dvelja í skólanum frá því snemma á morgnana, fram á kvöld. Einnig hefur hann aðgang að sundlaug og tækjasal skólans, en staðsetningartækið þarf hann enn að bera. Í tölvupósti til Einars S. Einarssonar, sem er í stuðningsmannahópi Arons Pálma á Íslandi, segir Aron Pálmi að hann sé glaður yfir skólavistinni, en samt óski hann þess heitast að hann fái að komast aftur til Íslands. Á morgun eru sex vikur liðnar frá því að svörum var heitið frá Ríkistjóraembættinu í Texas við ítrekuðum beiðnum stuðningsmanna Arons Pálma um heimfararleyfi til Íslands. Einar segir að ákvörðun ríkisstjórans ætti því að vera væntanleg fljótlega.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira