Afskipti þrátt fyrir neitun 22. ágúst 2005 00:01
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, fullyrti í viðtali í Kastljósþætti í síðustu viku að hann hefði engin afskipti haft af ritstjórnum þeirra fjölmiðla sem hann ætti. Í grein um Jón Ásgeir sem birtist í Mannlífi eru hins vegar týnd til tvö dæmi um að hann hafi haft afskipti af ritstjórnum fjölmiðla sinna. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra gerir málið að umtalsefni í pistli á heimasíðu sinni. Þar vitnar hann í Mannlíf, en þar er meðal annars fjallað um afskipti Jóns Ásgeirs af fréttaflutningi á Vísir.is. Í Mannlífsgreininni er vitnað í Sigurð Hólm Gunnarsson fyrrverandi blaðamann á Vísi.is þar sem hann lýsir því hvernig afskiptum Baugsmanna var háttað af frétt um ásakanir Jóns Geralds Sullenberger á hendur Jóni Ásgeiri sem birtist á netmiðlinum, en fréttin var unnin af fréttastofu Stöðvar tvö og birt á netmiðlinum. Í blaðinu eru meðal annars sýnd tölvusamskipti milli blaðamannsins og ritstjóra Vísis.is, sem fullyrti á sínum tíma að Jón Ásgeir hefði haft samband við sig og krafist þess að fréttin yrði fjarlægð af vefsíðunni. Þá er haft eftir Sigurði G. Guðjónssyni, fyrrverandi forstjóra Norðurljósa í Mannlífi, að Jón Ásgeir hefði sent sér tölvupóst haustið 2002, þar sem hann tjáði Sigurði að Baugur myndi ekki auglýsa í miðlum Norðurljósa framar. Gerðist þetta eftir viðtal Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Þórhalls Gunnarsson við Jóhannes Jónsson í Íslandi í býtið, en þáttastjórnendurnir lögðu fram gögn sem áttu að sýna óeðlilega hækkun vöruverðs á leiðinni frá Bandaríkjunum í verslanir Baugs. Gengu Þórhallur og Jóhanna hart fram í viðtali við Jóhannes. Sigurður G. Guðjónsson segir í samtali við Mannlíf að Jón Ásgeir, hafi eftir að Baugur eignaðist stóran hluta í Norðurljósum haft sérstakan áhuga á að koma Jóhönnu Vilhjálmsdóttur úr starfi. Í Kastljósviðtali sem Sigmar Guðmundsson átti hinsvegar við Jón Ásgeir síðastliðinn þriðjudag, sagðist Jón Ásgeir aldrei hafa reynt að hafa áhrif á ritstjórnir fjölmiðla sinna.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira