Erlent

Samþykktu fóstureyðingar á þingi

Íranska þingið hefur samþykkt að leyfa fóstureyðingar í landinu þegar líf móðurinnar er í hættu eða þegar ljóst þykir að barnið verði fatlað. Frá þessu greindi fréttastofan IRNA í dag. Deilt var um lögin á þinginu og bentu andstæðingar þeirra á að margir fatlaðir gengdu mikilvægu hlutverki í samfélaginu og einnig að hætta væri á að lögin yrðu misnotuð. Samkvæmt lögunum þurfa foreldrar að fara formlega fram á fóstureyðingu og þá þurfa þrír sérfræðingar og skrifstofa dánardómstjóra að samþykkja hana. Þótt lögin hafi verið samþykkt á þinginu eiga þau eftir að fá samþykki æðstu yfirvalda sem samanstanda af sex klerkum og jafnmörgum lögmönnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×