Aðfinnslur um kynþáttamisrétti 23. ágúst 2005 00:01
Nefnd Sameinuðu Þjóðanna um afnám kynþáttamiséttis gerir athugasemd við það að íslensk stjórnvöld skáru niður framlög til Mannréttindaskrifstofunnar með ákvörðunum stjórnvalda fyrr á þessu ári. Í nýrri skýrslu nefndarinnar er farið fram á að íslensk stjórnvöld veiti frjálsum félagasamtökum, sem vinna gegn kynþáttamisrétti, stuðning til að tryggja sjálfstæði þeirra og fjárhag. Þess er getið að Ísland hafi ekki tekið upp í landslög ákvæði sáttmála um afnám kynþáttamisréttis og eru stjórnvöld hvött til þess að ráða bót á því. Fram kemur að nefndinni hafa borist skýrslur um að flóttamenn og hælisleitendur hafi ekki ávallt fengið fullnægjandi afgreiðslu mála þótt íslensk lögreglu- eða landamærayfirvöld hafi fengið leiðsögn um alþjóðleg mannréttindi og lög um flóttamenn. Nefndin telur æskilegt að íslensk stjórnvöld endurskoði ákvæði um 24 ára aldursmark til dvalarleyfis þegar giftingaraldur er 18 ár. Hún mælir með að skilyrði svonefndra gervihjónabanda verði endurskoðuð. Fjallað er um skammtíma atvinnuleyfi í skýrslunni og talin hætta á brotum gegn réttindum erlendra farandverkamanna með því að binda atvinnuleyfi við atvinnurekendur fremur en launamennina sjálfa. Sérstök hætta er talin vera á brotum sem lúta að aðstæðum á vinnustað og starfskröfum. Vakin er athygli á því að ekki er starfrækt á Íslandi mannréttindastofnun og eru stjórnvöld hvött til þess að koma á fót slíkri stofnun sem starfi í anda Parísarsáttmálans. Nefnd Sameinuðu þjóðanna fagnar því að Íslendingar hafi undanfarið staðfest fjölda samninga og sáttmála, meðal annars um réttindi barna. Þá hafi réttur fólks af erlendum uppruna verið treystur með lögum. Slíkar réttarbætur hafi meðal annars orðið til þess að um eitt þúsund innflytjendur gátu nýtt sér kosningaarétt í sveitarstjórnarkosningunum árið 2002.
Fréttir Innlent Mest lesið Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Erlent Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Erlent „Skiljanlegt að mörgum blöskri við að vita að hann gangi laus“ Innlent Ísland rampar upp Úkraínu Innlent Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Erlent Fleiri fréttir „Skiljanlegt að mörgum blöskri við að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Býður Sólveigu á fundinn og kannast ekkert við Virðingu Töldu ekki skilyrði fyrir varðhaldi yfir grunuðum barnaníðingi Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Fara yfir gögnin en úttekt Viðskiptaráðs sé „skoðun hagsmunaaðila“ Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Hvetja ráðherra til að mæta ekki á fund veitingamanna Bátar sviptir haffærisskírteini og Kourani sækir um náðun Sjá meira