Athugasemdir við mannréttindamál 23. ágúst 2005 00:01
Fjölmargar athugasemdir vegna mannréttindamála hér á landi er að finna í niðurstöðu nefndar á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um afnám kynþáttamisréttis. Mismunun, meðferð á hælisleitendum, atvinnumál útlendinga og aldursskilyrði til dvalarleyfa er meðal þess sem gerðar eru athugasemdir við og eru íslensk stjórnvöld hvött til að vinna að úrbótum. Mælt er með því að alþjóðasamningur um afnám alls kynþáttamisréttis verði lögfestur á Íslandi. Og því að yfirvöld móti virkari stefnu til að koma í veg fyrir kynþáttamisrétti og stjórnvöld eru hvött til að grípa til beinna aðgerða til að koma í veg fyrir kynþáttafordóma á öllum sviðum mannlífsins, meðal annars með því að taka til athugunar setningu heildstæðrar löggjafar sem bannar mismunun. Nefndin lýsir áhyggjum sínum af upplýsingum þess efnis að hælisumsóknir séu ekki alltaf rétt meðhöndlaðar hjá landamæralögreglu og mælir með því að stjórnvöld endurskoði umdeild 24 ára aldursskilyrði vegna veitingar dvalarleyfa fyrir maka og skoði aðrar leiðir til að koma í veg fyrir nauðungarhjónabönd. Þá lýsti nefndin áhyggjum sínum af því fyrirkomulagi að veita atvinnurekendum en ekki starfsmönnunum sjálfum bráðabirgðatvinnuleyfi. Mælist til að stjórnvöld bæti réttarstöðu erlendra verkamanna og komi í veg fyrir að þeir verði fyrir mismunun. Nefndinni bárust einnig kvartanir um að einstaka skemmtistaðir neiti fólki um aðgang vegna kynþáttafordóma, og segir athygli verkja að ekki hafi fallið dómar á grundvelli almennra hegningalaga sem bannar slíkt framferði. Þá lýsir nefndin áhyggjum sínum af því að hælisleitendur geti aðeins áfrýjað úrskurðum til dómsmálaráðuneytis og mælir með að komið verði á fót sjálfstæðum úrskurðaraðila þangað sem hægt verði að áfrýja ákvörðunum Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytis. Nefndin lýsir áhyggjum sínum af því að fjárveitingar til Mannréttindaskrifstofu Íslands hafi verið felldar úr fjárlögum 2005 og hvetur stjórnvöld til að halda áfram samstarfi við samtök er berjast gegn kynþáttamisrétti, meðal annars með því að tryggja rekstrargrundvöll og sjálfstæði slíkra samtaka. Framkvæmdasjtóri Mannréttindaskrifstofu Íslands sem átti fund með sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna og skilaði viðbótarskýrslu til nefndarinnar segir athugasemdirnar ekki koma á óvart.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira