Bannað að mismuna eftir erfðum 23. ágúst 2005 00:01
Tryggingafélögum verður óheimilt, frá og með næstu áramótum, að óska eftir upplýsingum um arfgenga sjúkdóma foreldra og systkina þeirra sem sækjast eftir líf- og sjúkdómatryggingum. Þetta kemur fram í niðurstaðu Persónuverndar um öryggi vinnslu hjá tryggingafélögum sem unnin var vegna nýrra laga um vátryggingasamninga sem taka gildi 1. janúar. Niðurstaða barst tryggingafélögunum í síðustu viku og er enn verið að skoða hvaða áhrif þetta mun hafa á líf- og sjúkdómatryggingar. Þorvarður Sæmundsson, framkvæmdastjóri Lífís, segir að ef þetta niðurstaðan standi muni þeir aðilar sem ekki hafa fjölskyldusögu, hugsanlega þurfa að borga hærra iðgjald. "Áhættumatið verður ekki eins nákvæmt og ella og áhættan dreifist því víðar." Þorvarður segir að farið verði eftir tilmælum Persónuverndar. Vegna þessara úrskurðar mun Lífís taka við vátryggingabeiðnum þar sem þessum upplýsingum er sleppt. Einnig er líklegt að iðgjald líf- og sjúkdómatrygginga hjá Tryggingamiðstöðinni muni hækka, að sögn Péturs Péturssonar, upplýsingafulltrúa Tryggingamiðstöðvarinnar. "Í grundvallaratriðum erum við ósammála Persónuvernd og teljum þetta í ósamræmi við vátryggingalög sem taka gildi um næstu áramót. Við munum leita leiða til að fá þessu breytt og munum skoða hvort farin verði dómstólaleið eða leitað til æðra stjórnvalds." Þegar sótt er um líf- eða sjúkdómatryggingu í dag er óskað eftir upplýsingum um heilsufar foreldra og systkina. Meðal annars er spurt um hjarta- eða æðasjúkdóma, geðsjúkdóma, krabbameina eða aðra sjúkdóma sem gætu verið arfgengir. Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá Persónuvernd segir að leyfilegt verði að afla upplýsingar um heilsufar skyldmenna sem ekki tengjast arfgengum þáttum, sé þess gætt að fá samþykki skyldmennana. Hins vegar hljóti að vera leitað eftir slíkum upplýsingum til að kanna hættu á arfgengum sjúkdómum, sem verði óleyfilegt.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira