Skrúfað fyrir fjölmiðlaviðtöl 9. apríl 2005 00:01
Kardinálaráð kaþólsku kirkjunnar ákvað í gær að meðlimir þess skyldu hætta þegar í stað að veita nokkur fjölmiðlaviðtöl eða tjá sig opinberlega. Gildir bannið uns kardinálarnir hafa komist að niðurstöðu um það hver úr þeirra röðum muni setjast næstur á páfastól, að Jóhannesi Páli II gengnum. Kardinálarnir 130, sem saman eru komnir í Páfagarði, samþykktu einróma að skrúfa fyrir öll frekari fjölmiðlaviðtöl uns kjörfundur hefst að baki luktum dyrum Sixtínsku kapellunnar hinn 18. apríl, það er á mánudaginn eftir viku. Að sögn Joaquins Navarro-Valls, talsmanns Páfagarðs, er ákvörðunin "aðgerð í nafni skynseminnar". Hann kynnti ákvörðunina í gær sem beiðni til fjölmiðlamanna að láta vera að biðja kardinálana um viðtöl. Í ítölskum fjölmiðlum voru í gær líkur leiddar að því að Joseph Ratzinger, oddviti kardinálaráðsins, sem hélt líkræðu Jóhannesar Páls og hefur verið nefndur sem hugsanlegur arftaki hans, hefði átt frumkvæði að fjölmiðlabanninu. Að kardinálarnir skuli ekki veita nein viðtöl næstu daga mun þó ábyggilega ekki slá neitt á vangaveltur í fjölmiðlum um það hvernig kardinálarnir meta hvern annan og hver þeirra sé líklegastur til að hljóta stuðning hinna til páfadóms. Strangt til tekið er hver einasti fullorðinn kaþólskur karlmaður til þess bær að vera kjörinn páfi, en aldalöng hefð er fyrir því að kardinálarnir velji einn úr sínum hópi. Heimsathyglin beinist ekki síst að meintri togstreitu milli íhaldssamra og frjálslyndari hreyfinga innan kirkjunnar og að því hvort kardináli frá Rómönsku Ameríku eða Afríku eigi möguleika á því nú að vera útnefndur páfi. Navarro-Valls sagði að 115 kardinálar myndu sitja kjörfundinn. Tveir kardinálar sem rétt hafa til þátttöku hafa boðað forföll, en það eru Jaime L. Sin frá Filippseyjum og Alfonso Antonia Suarez Rivera frá Mexíkó. Rétt til þátttöku í kjöri páfa hafa allir kardinálar sem ekki hafa náð 80 ára aldri.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sjá meira