Milljarðafjárfesting í Glaðheimum 24. ágúst 2005 00:01
Fjárfestarnir sem vilja kaupa hesthús í Glaðheimum hafa stofnað eignarhaldsfélag til að halda utan um eignirnar. "Við lítum á þetta sem langtímafjárfestingu," segir Guðbjartur Ingibergsson. Hann, ásamt Kristjáni Ríkharðssyni, stendur að uppkaupum hesthúsanna. Hann segir jafnframt fjársterka aðila vera á bak við þá og býst við uppkaupum fyrir allt að einn og hálfan milljarð. Fjárfestunum gengur það til að hafa forgang að lóðunum þegar hestamenn fari annað. Hestamannafélagið Gustur og bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa hins vegar þvertekið fyrir það á opinberum vettvangi undanfarna daga að félagið flytji sig um set, og er hætt við að fjárfestarnir fái þá lítið fyrir sinn snúð. Í rauninni leggja þeir féð undir í trausti þess að það breytist. "Það gefur auga leið að við hefðum aldrei farið út í þetta ef þær væntingar væru ekki til staðar," segir Guðbjartur. Þeir hyggjast ekki draga í land. "Við bjuggumst alltaf við andstöðu en áttum kannski ekki von á því að farið yrði með þetta í fjölmiðla." Guðbjartur telur fjöldamarga Kópavogsbúa andsnúna því að hafa Glaðheima í miðri byggð, og þrátt fyrir yfirlýsingar síðustu daga vonast hann enn til þess að afstaða Kópavogsbæjar og hestamannafélagsins muni breytast á næstu árum. Hann bendir á að margir hafi áhuga á að komast að á svæðinu. Guðbjartur þvertekur fyrir það að um aðför að félaginu sé að ræða. "Það var aldrei í okkar huga ætlunin að ganga þannig frá þessu að Gustur bæri skarðan hlut frá borði." Hann segir þá hafa boðist til að kaupa reiðhöll Gusts og reiðvelli í Glaðheimum af stjórn Gusts, og kveður þá tilbúna að aðstoða félagið við að finna nýjan framtíðarstað og koma þar upp aðstöðu. "Ef það er vilji fyrir hendi eru til næg svæði." Að sögn hans eru 63 hesthús á svæðinu sem skiptast í 101 eignarhluta. Hann telur fjárfestana hafa tryggt sér 36 eignarhlutanna.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira