Ekki kunnugt um frekari uppsagnir 24. ágúst 2005 00:01
Um tvö hundruð manns hefur verið sagt upp stöfum hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli á síðustu tveimur árum. Þrettán starfsmönnum flugþjónustudeildar verður sagt upp um mánaðamótin og taka starfsmenn flughersins við þeirra störfum. Upplýsingafulltrúi varnarliðsins segir að sér sé ekki kunnugt um frekari uppsagnir hjá varnarliðinu. Umfang varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli hefur minnkað verulega síðustu ár. Í október árið 2003 var 90 starfsmönnum varnarliðsins sagt upp störfum og hefur frá þeim tíma rúmlega 100 verið sagt upp. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, segir fyrirhugaðar uppsagnir á fólki í flugþjónustu við herflugvélar, en sú vinna fari í hendur verktaka. Þess sé vænst að samningur við hann verði gerður fljótlega. Friðþór segir að þetta hafi staðið fyrir dyrum í á annað ár en það sé bandaríski flugherinn sem sjái stöðinni fyrir ákveðinni flugþjónustu, þ.e. farþegaflugi og loftflutningum. Aðspurður hvort fleiri uppsagnir séu fyrirhugaðar hjá varnarliðinu segir Friðþór að honum sé ekki kunnugt um það og engin slík ákvörðun liggi fyrir. Í sumar var greint frá því að verið væri að skoða hvort flugherinn myndi taka við starfsemi stöðvarinnar, en varnarstöðin hefur verið flotastöð frá upphafi. Aðspurður hvenær von sé á niðurstöðu í því máli segir Friðþór að hann þori ekki að segja til um það. Verið sé að kanna hvernig þessi skipti færu fram ef af þeim yrði og ekki sé að vænta frétta af því fyrr en niðurstöður þeirrar könnunar liggi fyrir þannig að menn geti tekið endanlega ákvörðun um það.
Fréttir Innlent Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira