Hundrað milljón börn án skólagöngu 18. apríl 2005 00:01
100 milljónir barna víða um heim fara á mis við skólagöngu og stúlkur eru þar í yfirgnæfandi meirihluta. Ástandið virðist þó heldur vera að lagast en betur má ef duga skal. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, birti í gær skýrslu um skólagöngu barna víða um heim. Samtökin telja að um eitt hundrað milljónir barna hljóti ekki menntun af neinu tagi, samanborið við 115 milljónir árið 2001. Þótt örlítið hafi miðað áfram segja forsvarsmenn samtakanna að þjóðir heims verði að leggjast á árarnar, eigi markmið SÞ um að allir njóti lágmarksmenntunar árið 2015 að nást. Mun færri stúlkur en drengir sækja skóla og það veldur forsvarsmönnum UNICEF sérstökum áhyggjum. Ástandið er slæmt í Mið-Austurlöndum, Vestur- og Mið-Afríku og sunnanverðri Asíu. Í Afganistan og Pakistan er aðgangur stúlkna að skólum sérstaklega bágborinn. Stríðsátök hafa sitt að segja í þessum efnum og ekki þarf að koma á óvart að fátækt stendur oft skólagöngu barna fyrir þrifum. Þannig segir í skýrslunni að telpur sem koma frá fátækustu heimilunum séu þrefalt líklegri til að fara á mis við skólagöngu en kynsystur þeirra sem búa við betri kjör. "Menntun snýst ekki bara um að læra hluti," sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, þegar hún kynnti skýrsluna. "Í mörgum löndum getur lágmarksmenntun skilið á milli feigs og ófeigs, sérstaklega þegar stúlkur eiga í hlut. Stúlkur sem eru ekki í skóla eru líklegri til að smitast af alnæmi og síður líklegar til að geta stofnað heilbrigða fjölskyldu seinna meir." UNICEF bendir á að í sumum ríkjum Evrópu sé staðan jafnframt slæm fyrir stúlkur og eru Tyrkland og Hvíta-Rússland sérstaklega nefnd. Skólagjöld og kostnaður við bækur og skólabúningar eru sögð orsakir þess að stúlkur flosni upp úr námi í þessum löndum. Að sögn BBC hefur breska ríkisstjórnin þegar lofað að verja 168 milljörðum króna á næstu þremur árum í að aðstoða fleiri stúlkur við að afla sér menntunar.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Sjá meira