Aldrei fleiri útlendingar 16. september 2005 00:01
Hlutfall erlendra starfsmanna á vinnumarkaði á Íslandi er með því hæsta á Norðurlöndunum. Aðeins í Svíþjóð er hlutfallið hærra og er munurinn óverulegur. Á Íslandi er erlent vinnuafl 4,5 prósent vinnumarkaðarins en í Svíþjóð mælist það 4,6 prósent. Í Danmörku, þar sem umræðan um útlendinga hefur verið hvað mest áberandi, er hlutfall erlendra ríkisborgara á vinnumarkaðinum þrjú prósent. Hlutfallið er lægst í Finnlandi þar sem 1,4 prósent vinnuafls eru erlendir ríkisborgarar. Tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar eru búsettir á Íslandi nú en fyrir áratug og hefur þeim fjölgað úr 4.800 í um ellefu þúsund. Af þeim eru um sjö þúsund á vinnumarkaðinum. Að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, má telja víst að alls vanti starfsfólk í um þrjú þúsund störf á Íslandi. Sökum takmarkana í veitingu atvinnuleyfa verður ekki fyllt í þau störf með útlenskum starfsmönnum. Þrátt fyrir skort á vinnuafli verður atvinnuleyfum ekki fjölgað umfram það sem þegar hefur verið veitt. "Við verðum líka að vera undir það búin að geta tekið bakslagið. Það vantar stórlega fólk til skamms tíma en hið opinbera getur ekki látið stýrast af því heldur þarf að hugsa fram í tímann," segir Gissur. Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, telur að manna eigi þau störf sem ekki tekst að ráða íslenskt starfsfólk í, með innflutningi vinnuafls. "Það er að mörgu leyti lausn fyrir Ísland þegar koma tímabil með miklum hagvexti og mikilli þenslu líkt og núna," segir hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Holskefla í kortunum Innlent Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Innlent Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Innlent Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Innlent Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Innlent Bílslys í Laugardal Innlent Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Innlent Fleiri fréttir Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Sjá meira