Lögðu undir sig stjórnarráðið 24. mars 2005 00:01
Mótmælendur hafa lagt undir sig stjórnarráðsbygginguna, forsetaskrifstofuna og ríkissjónvarpið í höfuðborg Kirgisistans, Bishkek, eftir átök við herlögreglu og stjórnarsinna á götum úti í morgun. Stöðugar róstur hafa verið í landinu frá því að kosningar fóru fram í síðasta mánuði, en í morgun streymdu þúsundir mótmælenda út á götur borgarinnar Bishkek og kröfðust afsagnar forsetans. Mannfjöldanum lenti saman við herlögreglu sem reyndi að gæta opinberra bygginga. Á skömmum tíma tókst mannfjöldanum þó að komast inn í þinghúsið á sama tíma og embættismenn flýðu bygginguna með aðstoð lögreglu, sem einnig lét sig hverfa. Rússneska fréttastofan Interfax segir þó að varnamálaráðherra landsins sé haldið föngnum í byggingunni. Fólkið er sagt hafa brotið rúður og veifar nú fánum út um glugga byggingarinnar og fleygir gögnum út um gluggana. Átökin brutust út í kjölfar þess að hundruð fylgjenda forsetans Askars Akajevs réðust að um 10 þúsund mótmælendum með spýtur og grjót að vopni á aðaltorgi borgarinnar fyrr í morgun. Skothvellir eru sagðir hafa heyrst og vitni segja torgið alþakið rusli og blóðslettum eftir átökin. Engar fregnir hafa enn borist af mannfalli í átökunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Sjá meira