Sport

Nistelrooy er mættur aftur

"Allir sem að félaginu koma eru gríðarlega ánægðir fyrir hönd Nistelrooy. Ég missti aldrei trúna á hann," sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir að hafa horft upp á hollenska markahrókinn sinn skora tvö mörk í undanúrslitaleiknum gegn Newcastle í gær þar sem lokatölur urði 4-1, Man.Utd í vil. Nistelrooy hafði átt erfitt uppdráttar að undanförnu og ekki skorað mark í þeim sex leikjum sem hann hafði spilað síðan hann náði sér af meiðslunum sem öftruðu honum frá keppni í þrjá mánuði. Nistelrooy kom Man.Utd á blað í leiknum á 19. mínútu með sínu fyrsta marki frá því í nóvember á síðasta ári. "Þetta var týpískt mark fyrir hann. Hann þurfti engan kraft í skotið heldur lagði hann boltann í bláhornið. Enginn markvörður í heiminum hefði varið þetta skot," sagði Ferguson eftir leikinn en mark hollendingsins var einkar laglegt. "Við höfum saknað hans og nú vona ég bara að hann haldi áfram að skora mörk fyrir liðið. Okkar hefur vantað mörkin í síðustu leikjum og í okkar liði er enginn betri en Nistelrooy í því starfi," bætti Ferguson við. Ósigurinn fullkomnaði hörmulega viku fyrir Newcastle sem féll úr leik í Evrópukeppni félagsliða á fimmtudaginn. Það var í raun aldrei spurning um hvort liðið færi með sigur af hólmi í leiknum í gær og sáu þreyttir leikmenn Newcastle aldrei til sólar í leiknum. Enginn lék betur en Christiano Ronaldo, en hann lagði upp fyrstu tvö mörkin og skoraði síðan það fjórða. Man.Utd mætir Arsenal í úrslitaleiknum á Þúsaldarvellinum í Cardiff þann 21. maí nk. en Arsenal valtaði yfir Blackburn á laugardaginn. Roy Keane, fyrirliði Man.Utd, sagði það einstaklega góða tilfinningu að vera kominn í úrslitaleikinn. "Þeir áttu aldrei glætu í okkur. Við vissum að þeir voru þreyttir eftir Evrópuleikinn á fimmtudaginn og við ætluðum okkur alltaf að keyra á þá á mesta mögulega hraða. Það gekk upp og ef við spilum svona í úrslitaleiknum þá erum við á grænni grein," sagði Keane eftir leikinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×