Meistarar í þriðja sinn 7. febrúar 2005 00:01
New England Patriots tryggði sér meistaratitilinn í ameríska fótboltanum í fyrrinótt annað árið í röð og þriðja skiptið á fjórum árum þegar liðið bar sigurorð af Philadelphia Eagles, 24-21, í 39. leiknum um Ofurskálina í Jacksonville. Fyrirfram var búist við því að New England myndi verja titil sinn nokkuð auðveldlega en meistararnir þurftu svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum. Terrell Owens, aðalhlaupari Eagles, sneri aftur eftir sjö vikna fjarveru vegna fótbrots og gaf öllum læknum langt nef, læknum sem sögðu að hann gæti aldrei spilað þennan leik. Owens átti fínan leik en hann átti samt ekkert svar við stórkostlegum leik Deion Branch hjá New England sem greip ellefu bolta og hljóp alls 133 metra með boltann. Branch var valinn maður leiksins að honum loknum og skyggði algjörlega á Tom Brady, leikstjórnanda New England, sem hafði verið valinn maður leiksins í báðum sigurleikjum liðsins í Ofurskálinni árin áður. Brady átti samt góðan leik og skilaði þremur sendingum sem gáfu snertimörk. "Fyrir mér þá tilheyrir þessi titill leikmönnunum. Þeir stóðust allar atlögur þetta árið, ár sem var mikil áskorun. Þeir spiluðu frábærlega allt árið, voru bestir í stórleikjunum og áttu sigurinn svo sannarlega skilið," sagði Bill Belichick, þjálfari New England, sem hefur skipað sér á bekk með helstu þjálfaragoðsögnum í sögu ameríska fótboltans. Tom Brady, leikstjórnandi New England, hrósaði Deion Branch sérstaklega eftir leikinn. "Þvílíkur leikur og þvílíkir andstæðingar. Við komumst ekkert áleiðis í fyrsta leikhlutanum en síðan opnaði Deion Branch þetta fyrir okkur með frábærri frammistöðu," sagði Brady. Meistarar síðustu tíu ára 2005 New England Patriots 2004 New England Patriots 2003 Tampa Bay Buccaneers 2002 New England Patriots 2001 Baltimore Ravens 2000 St. Louis Rams 1999 Denver Broncos 1998 Denver Broncos 1997 Green Bay Packers 1996 Dallas Cowboys
Íþróttir Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Fótbolti Fleiri fréttir Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Gunnlaugur Árni á U.S. Open Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Dagskráin: Kemst Gunnlaugur Árni í gegnum niðurskurðinn á US Open? Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Sjá meira