Máttleysi stjórnvalda gagnrýnt 6. september 2005 00:01
Viðbrögðin við Katrínu og afleiðingum hennar hafa verið harðlega gagnrýnd. Íbúar skilja ekki hvers vegna ekkert var gert til að koma í veg fyrir hörmungarnar og hvers vegna enginn kom þeim til hjálpar þegar í stað. Íslenskir verkfræðingar segja að það hafi verið fyrirsjáanlegt hvernig færi áður en Katrín skall á. Þegar Bandaríkjaþing kemur saman á ný í næstu viku ætla tvær þingnefndir að taka viðbrögð stjórnvalda við hamförunum í Suðurríkjunum til skoðunar. Hillary Clinton hefur krafist þess að sérstök rannsóknarnefnd verði skipuð til að kanna hvernig jafnlangur tími gat liðið og raun ber vitni uns hjólin tóku að snúast. Bill Clinton, sem ýtti í gærkvöldi úr vör sérstöku söfnunarátaki með Bush eldri, er einnig gagnrýninn. Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir að ýtarlega greining þurfi að eiga sér stað á atburðunum. Hann sagði einnig að nauðsynlegt væri að skipuleggja hjálparsamtök sem komið hafa að málinu. Hann sagði að enn væri verið að finna bæði lifendur og látna og hamfarasvæðinu og hann benti einnig á að fjölmargir þeirra sem væri saknað væru ef til vill enn á lífi. Hann lagði áherslu á að á þessum tíma væri nauðsynlegt að setja sig í spor þeirra sem upplifað hafa hörmungarnar og eru enn að því. Talsmenn Hvíta hússins segja að þar á bæ standi ekki til í að taka þátt í því að kenna einhverjum um, en New York Times segir að í raun sé í undirbúningi herferð til að kenna um yfirvöldum í ríkjunum sem verst urðu úti. Ritstjórar dagblaðsins Times-Picayune í New Orleans eru hins vegar með á hreinu hver ber ábyrgðina þegar öllu er á botninn hvolft: Bush forseti, og það skrifuðu þeir í leiðara blaðsins. Íslenski verkfræðingurinn Sigurður Magnús Garðarsson, dósent við háskóla Íslands, segir að það sem gerðist í New Orleans hafi verið nákvæmlega eins og búast hefði mátt við. Hann segir það vera alveg ljóst að varnagarðarnir í borginni væru hannaðir fyrir miklu minni fellibylji en nú reið yfir þannig að í rauninni gerðu hönnunarforsendur ráð fyrir því að varnargarðarnir rofnuðu eða hyrfu. Varnargarðarnir bresta og þá virðist sem almannavarnarkerfið bregðist ekki nógu hratt við en nánari rannsókn á eftir að fara fram. En Sigurður sagði að frá sjónarhóli sérfræðinga hefði þetta ekki átt að koma á óvart þar sem búið var að spá þessu. Aðspurður hvort það hefði verið mögulegt að koma í veg fyrir þetta sagði Sigurður að mögulegt hefði verið að koma í veg fyrir þetta og benti á leiðir eins og hærri varnargarða.
Erlent Fréttir Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Maðurinn á Esjunni er fundinn Innlent Orri Harðarson er allur Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Leitin ekki enn borið árangur Innlent Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Erlent Fleiri fréttir Kona látin eftir stunguárás í Noregi Þungi færist í árásir Rússa: „Þetta er orðið partur af okkar lífi“ Rússar líta ekki lengur á Bandaríkin sem sinn helsta óvin Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Einar hörðustu árásirnar á Kænugarð til þessa Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Newsom ætlar að kæra Trump Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Ísraelsher stöðvaði skútuna og handtók áhöfnina Telja Ísraelsher hafa umkringt bát Thunberg Forsetaframbjóðandi skotinn í höfuðið Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Sjá meira