Líkur á að hamfarir endurtaki sig 18. mars 2005 00:01
Líkur eru á því að hamfarirnar í Indlandshafi endurtaki sig og það frekar fyrr en síðar, samkvæmt nýjum rannsóknum. Núr er reynt að skipuleggja uppbyggingarstarf á svæðinu og útdeila peningum sem hafa þó ekki skilað sér nema að litlum hluta. Bill Clinton og George Bush, fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna, fóru fyrir hópi embættismanna og stjórnmálamanna sem ræddu hvernig deila ætti þeim fjármunum sem söfnuðust til styrktar fórnarlömbum flóðbylgjunnar í desember. Meginverkefnið er að samræma uppbyggingarstarfið og koma í veg fyrir að spilling eigi sér stað. Stjórnvöld um víða veröld hafa alls heitið sex milljörðum Bandaríkjadala til hamfarasvæðanna þó að enn sem komið er hafi ekki nema lítill hluti af þeirri upphæð skilað sér. Þá segja yfirmenn hjálparstarfsins að tólf milljarða dollara til viðbótar vanti enn upp á ef vel eigi að takast til við að byggja svæðið upp á nýjan leik. Vísindamenn segja enn mikla hættu á náttúruhamförum á sömu slóðum og flóðbylgjan varð annan dag jóla. Jarðskjálftinn sem henni olli hefur margfaldað líkur á skjálftum eftir tveimur öðrum brotalínum skammt frá, annars vegar Súmötrubrotalínunni, þar sem öflugur jarðskjálfti gæti orðið, og svo í Sunda-skurðinum. Verði skjálfti þar eru líkur á að hann yrði mjög öflugur og myndi valda mikilli flóðbylgju. Allar líkur eru á að Súmatra yrði mjög illa úti og þar sem skurðurinn er skammt frá eynni yrði ekki tími til að gefa neinar viðvaranir. Vísindamennirnir segja vonlaust að áætla hvenær skolfið gæti á þessum stöðum en benda á að jarðskjálftar komi oftar en ekki í kippum.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira