Uppreisn í Úsbekistan 16. maí 2005 00:01
Mótmælendur hafa farið mikinn í borginni Andijan í austurhluta Úsbekistans undanfarna daga í mótmælum gegn ríkisstjórn Islams Karimov. Meira en 700 manns hafa látist í landinu síðan á föstudag þegar uppreisnarmenn réðust í fangelsi í borginni og frelsuðu þaðan 23 pólitíska fanga. Krafa uppreisnarmannanna er skýr; þeir vilja ríkisstjórnina frá. Stjórnarherinn hefur barið niður uppreisnarmenn með miklu offorsi og stefnir í mesta mannfall í slíkum aðgerðum í Asíu síðan Kínaher barði á stúdentum á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Nú þegar eru flóttamenn farnir að streyma frá landinu og sérstaklega reyna margir að flýja til Kirgisistans en þarlend stjórnvöld eru þó treg til að taka við flóttamönnunum. Undanfarnar vikur hefur risið upp hreyfing manna sem mótmæla stjórnarháttum ríkisstjórnar Islams Karimov sem hefur haldið fast um stjórnartaumana síðan Sovétríkin liðu undir lok fyrir fjórtán árum. Mótmælendurnir líta gjarnan til nágranna sinna í Kirgisistan sem hröktu forseta sinn, Askar Akajev, frá völdum og þá einnig til Appelsínu- og Rósabyltinganna í Úkraínu og Georgíu. Kabuljon Parpiyev, leiðtogi uppreisnarmanna, sagði í samtali við AP-fréttastofuna að engan bilbug væri að finna á mótmælendum og þeim væri sama þótt það myndi kosta hundruð mannslífa enn að koma stjórnvöldum frá. Rússar eru farnir að saka Bandaríkin og fleiri lönd um að grafa meðvitað undan Moskvuhollum ríkisstjórnum í fyrrverandi Sovétlýðveldum. Nikolaj Patrúsjeff, yfirmaður rússnesku leyniþjónustunnar FSB, heldur því fram að Bandaríkin beiti óháðum félagasamtökum til að njósna og ýta undir róstur til að tryggja að stjórnmálamenn sem vilja halla sér til vesturs komist að í sem flestum fyrrverandi Sovétlýðveldum. Nýverið hrósaði George Bush Bandaríkjaforseti Georgíumönnum fyrir Rósabyltinguna og var ákaft hylltur í heimsókn sinni þangað.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira