Hitti banamann sinn á krá 29. mars 2005 00:01
Líkið sem fannst sundurbútað í Kaupmannahöfn um páskana, var af rúmlega fertugum dönskum leigubílstjóra. Leigubíll hans fannst yfirgefinn í dag, skammt frá þeim stað þar sem líkið fannst. Lögreglan telur hann hafa hitt banamann sinn á krá í nágrenninu. Eftir að myndir af líkinu voru birtar í dönskum fjölmiðlum í gær bárust lögreglu yfir hundrað ábendingar frá almenningi um hver maðurinn gæti verið. Í morgun voru rúmlega fimmtíu nöfn á listanum en eftir að lögregla fékk upphringingu frá nánum ættingja mannsins var nafn hans sett efst á listann. Tennur líksins voru bornar saman við tannlæknaskýrslur og staðfestu grun lögreglu. Málið hefur skiljanlega fengið mikla fjölmiðlaumfjöllun og gerði Ekstrablaðið málinu ítarleg skil í máli og ekki síst myndum í dag þar sem meðal annars var birtur uppdráttur af því hvernig líkið var bútað í sundur. Lögregla hefur ekki staðfest að vélsög hafi verið notuð en vitað er að maðurinn lést af stungusárum. Ekstrablaðið sagði manninn hugsanlega leigubílstjóra. Nú undir kvöld staðfesti lögregla það, í Íslandi í dag þeirra Dana, Go' aften Danmark, og sagði leigubíl mannsins hafa fundist í dag skammt frá þar sem líkið fannst. Eitt af því furðulega við málið er að sjálfur morðstaðurinn liggur ekki fyrir þar sem líkið fannst á tveimur stöðum í Kaupmannahöfn. Hundi tókst það sem lögreglu tókst ekki, skrifar Ekstrablaðið, og vísar til þess að Kaupmannahafnarbúi sem var að viðra hundinn sinn fann búkinn af manninum í gærmorgun eftir að fætur og hönd höfðu fundist nokkur hundruð metra frá tveimur sólarhringum áður.
Erlent Fréttir Mest lesið Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent „Hamfarir og ekkert annað“ Innlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Erlent „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Fleiri fréttir Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent