Minna hafdýpi minnkaði flóðbylgju 29. mars 2005 00:01
Fyrstu fréttum svipaði mjög til þeirra sem bárust á annan í jólum, þegar flóðbylgja af völdum jarðskjálfta í Indlandshafi breiddi dauða og eyðileggingu um strandríkin í kring. Jarðskjálftinn sem varð á svipuðum slóðum á mánudag reyndist þó ekki valda neinni viðlíka flóðbylgju, þar sem hann var allnokkru veikari og á minna dýpi. Jarðskjálfti, sem er 8,7 stig á Richter-kvarða er samt það sterkur að hann getur valdið mikilli eyðileggingu í að minnsta kosti 200 km radíus frá skjálftamiðjunni. Verst urðu íbúar Nias-eyju úti, sem er rétt sunnan við upptök skjálftans, undan strönd Súmötru. Þar hrundu um sjö af hverjum tíu húsum og þúsundir manna grófust undir rústum. Skýringa á því hvers vegna ekki varð vart við mikla flóðbylgju í þetta sinn er að sögn jarðvísindamanna að leita í tvennu; bæði var skjálftinn nú orkuminni en sá fyrri og hann varð undir minna hafdýpi. "Aðalmunurinn er að það er miklu minna hafdýpi fyrir ofan þennan skjálfta en var fyrir ofan þann sem varð á annan í jólum. Það skiptir meginmáli hvað varðar myndun flóðbylgju," segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur. "Þessi skjálfti varð á milli tveggja eyja, þar sem er frekar grunnt, í samanburði við þann fyrri. Til þess að mikil flóðbylgja náist upp þarf hafdýpið fyrir ofan brotalínu skjálftans að vera mikið. Þar sem er djúpt hreyfist miklu meiri massi sjávar en þar sem grunnt er." Ragnar segir að jarðhræringarnar í nýja skjálftanum hafi verið í eðli sínu svipaðir og í stóra hamfaraskjálftanum 26. desember. Þær urðu á samgengi, þar sem einn jarðskorpufleki gengur undir annan. Munurinn felst fyrst og fremst í styrkleikastigi og staðsetningu, það er að nýi skjálftinn varð undir minna hafdýpi. Að sögn Ragnars hefur vafalaust gengið sjór á land næst skjálftamiðjunni, þótt ekkert hafi orðið vart við flóðbylgju fjær. Skjálftar af þessari gerð og styrkleika geti vel valdið mikilli flóðbylgju, en til þess þyrfti hann að verða á meira hafdýpi en raunin var með skjálftann á mánudag. Brotalínan í nýja skjálftanum var um 200-500 km að lengd, en í jólaskjálftanum var hún sennilega á bilinu 1.000-1.300 km löng. Lóðrétta misgengið var aðeins nokkrir metrar nú, en var á annan tug metra í fyrri skjálftanum. Láta mun nærri að tíu sinnum meiri orka hafi leystst úr læðingi í skjálftanum annan í jólum en nú á mánudaginn.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira