Akajev ætlar ekki að segja af sér 29. mars 2005 00:01
Askar Akajev, forseti Mið-Asíuríkisins Kirgisistans, sem flýði land í kjölfar uppreisnar í síðustu viku segist ekki ætla að segja af sér. Í viðtali við rússneska útvarpstöð í dag lýsti hann því yfir að hann teldi sjálfan sig eina réttkjörna forseta landsins og því hefði hann ekki í hyggju að segja af sér. Akajev dvelur nú í Rússlandi, en leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Kurmanbek Bakijev, var í gær skipaður forsætisráðherra landsins á þjóðþinginu í höfuðborginni Bishkek og er hann einnig sagður staðgengill forseta. Uppreisnina í Kirgisistan má rekja til óánægju stjórnarandstöðunnar með framkvæmd þingkosninga um síðustu mánaðamót, en þar var talið að brögð hefðu verið í tafli og krafist var afsagnar Akajevs. Á fimmtudaginn var kom svo til átaka milli stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga í Bishkek sem lyktaði með því stjórnarandstæðingar lögðu undir sig stjórnarráðið oig forsetaskrifstofuna. Í kjölfarið flýði Akajev til Rússlands. Síðan þá hefur Hæstiréttur Kirgisistans ógilt kosningarnar og úrskurðað að þingmenn sem sátu fyrir kosningar skuli fara með völdin en ekki hið nýkjörna þing. Mjög hefur verið deilt um þá ákvörðun en í dag komust deiluaðilar að samkomulagi um að hið nýkjörna þing skyldi starfa áfram en Bakijev verður áfram forsætisráðherra. Bakijev vill halda forsetakosningar innan þriggja mánaða en þingforseti segir að ræða verði við Akajev sem ekki hafi formlega sagt af sér embætti
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira