Veiðar ekki inni á skoðunarsvæði 10. ágúst 2005 00:01
Vísindaveiðar á hval eiga ekki að ná inn á svæði hvalaskoðunarskipanna að sögn Hafrannsóknastofnunar. Ekki er útilokað að hvalhræið sem fannst á dögunum sé tilkomið vegna veiðanna en þó mælir margt gegn því. Gísli Víkingsson hjá Hafrannsóknarstofnun segir símtöl til hvalaskoðunarfyrirtækja ekki sönnun um að veitt sé í nánd við svæði skoðunarferðanna eins og Guðmundur Gestsson, framkvæmdastjóri Hafsúlunnar, hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Gísli segir að til þess að lágmarka árekstra hafi verið tekið upp kerfi sem snúist um það að hringja í hvalaskoðunarfyrirtækin til að athuga hvort þau hyggist fara út fyrir hin hefðbundnu skoðunarsvæði. Ef svo sé haldi veiðimenn sig frá þeim svæðum. Aðspuður hvort það geti verið að hvalhræið sem fannst á Faxaflóa sé eftir vísindaveiðar segist Gísli ekki hægt að útiloka það en hann telji það mjög ólíklegt. Í veiðunum er einungis hluti hvalsins tekinn með í land. Beinagrind, innyflum og ýmsu öðru er sökkt og segir Gísli að mjög vel sé gengið frá því. Þar að auki hafi þetta hræ fundist óvenjulangt frá þeirra miðum. Þá segir hann rangt að meira sé veitt á ákveðnum svæðum en ætlað er til að fylla upp í kvótann. Hann segir veiðunum dreift eftir árstíma og á níu hólf í kringum landið. Það sé ákveðinn fjöldi dýra tekinn úr hverju hólfi til þess að fá sem best sýni af fæðunni í öllum landshlutum og eftir árstíma.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira