Skorar á Bílddæling að gera upp 10. ágúst 2005 00:01 "
Þeir eiga eftir að gera upp við okkur starfsfólkið fjórar vikur, reyndar var slumpað inn á reikningana sem átti að vera tveggja vikna laun en hinar tvær vikurnar eru með öllu óuppgerðar," segir Sólrún Aradóttir fyrrum starfsmaður Bílddælings útgerðarfyrirtækisins á Bíldudal sem lagði niður starfsemi sína í síðasta mánuði. Hún segir að nú þegar hafi tuttugu manns flutt úr bænum frá því sjávarútvegsfyrirtækin Bílddælingur og Mírar lögðu upp laupana. Verkalýðsfélag Vestfjarða, sem fundaði með fyrrum starfsmönnum Bílddælings og Mírar í lok síðasta mánaðar, hefur sent Guðmundi Gunnarssyni stjórnarformanni áskorun um að borga ógoldin laun og gjöld. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stóð stjórnarformaðurinn í þeirri trú að öll laun hefðu verið greidd en bókhaldsskrifstofu fyrirtækisins var lokað meðan vinnsla var enn í gangi og neitaði bókhaldari fyrirtækinu um aðgang að gögnunum. Því var ekki hægt að senda starfsfólkinu launaseðla með síðustu launagreiðslu. Helgi Ólafsson, varaformaður Verkalýðsfélags Vestfjarða, segir að félagið hafi reiknað saman vinnustundir starfsmanna á tímabilinu og þar sem ekki hafi borist nein viðbrögð við áskorun þeirra verði innheimtukrafa líklega send lögfræðingi á næstunni. Hann segir þó kröfuupphæð ekki liggja fyrir þar sem enn sé ekki víst hvað fyrirtækið greiddi mikið í síðustu launagreiðslu. Guðmundur segir að nú sé verið að reikna út laun hvers starfsmanns fyrir sig og að laun þeirra verði gerð upp á allra næstu vikum enda sé það algjört forgangsatrði hjá fyrirtækinu. Hann segir að hluta af vandræðunum með launagreiðslurnar megi rekja til þess að bókhaldsskrifstofu hafi verið lokað fyrirvaralaust. Hann segir ennfremur að hann hafi seilst í eigin vasa til að greiða starfsmönnum eftir að vinnslu lauk. Jafnframt áskoruninni á stjórnarformann skorar Verkalýðsfélagið á þingmenn kjördæmisins að færa byggðarfélaginu aftur þær aflaheimildir sem frá því voru teknar eftir að fiskveiðikvótar fóru að ganga kaupum og sölu.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira