Innlent

Fær hátt í 20 milljónir frá KEA

Kaupfélag Eyfirðinga greiðir Andra Teitssyni, fyrrum framkvæmdastjóra KEA, hátt í tuttugu milljónir króna vegna starfsloka hans hjá félaginu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Mánaðarlaun hans voru um 1,2 milljónir króna þegar hann sagði starfi sínu lausu í síðustu viku. Starfslokasamningur sem gerður var við Andra kveður á um að hann verður á launaskrá hjá félaginu, án starfstitils og án vinnuskyldu, þangað til hann fer í níu mánaða fæðingarorlof, sem að líkindum byrjar í janúar næstkomandi, og því getur félagið nú þegar ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, hefur gefið til kynna að brotthvarf Andra frá félaginu eigi ekki rætur að rekja í ósk hans um langt fæðingarorlof heldur hafi komið upp trúnaðarbrestur milli Andra og stjórnar KEA. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það rétt og hefur meirihluti stjórnar KEA verið óánægður með störf framkvæmdastjórans í marga mánuði. Andri vill ekki tjá sig frekar um ástæður þess að hann hafi sagt starfi sínu lausu hjá KEA en vísar í fréttatilkynningu frá því á föstudaginn í síðustu viku þar sem fram kemur að ástæðan sé ósk hans um langt fæðingarorlof. Heimildir Fréttablaðsins herma að stjórnarmenn hafi meðal annars gert athugasemdir við að langan tíma hefur tekið að hrinda ákvörðunum aðalfundar og stjórnar félagsins í framkvæmd. Einnig hafi sumir stjórnarmanna verið óánægðir með persónulegar fjárfestingar framkvæmdastjórans er lúta að jarðakaupum og í fyrra veitti stjórnin honum áminningu í tengslum við fyrirhuguð kaup hans á þriðjungshlut í stærsta mjólkurframleiðslubúi landsins í Eyjafjarðarsveit. Kornið sem fyllti mælinn hjá stjórn KEA var að þegar tilboð voru opnuð í Símann, fimmtudaginn 28. júlí síðastliðinn, var framkvæmdastjórinn í veiðitúr og stjórnarmönnum gekk illa að ná tali af honum. Kaupfélag Eyfirðinga var í hópi fjárfesta sem áttu næsthæsta tilboðið í Símann og hugsanlegt að félagið hefði átt kost á að gera annað tilboð sama dag og þau voru opnuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×