Ótrúlegur leikur í Laugardalnum 12. september 2005 00:01
Grindvíkingar verða að sigra lokaleik sinn gegn Keflavík næsta laugardag í Landsbankadeild karla ætli þeir sér að eiga einhvern möguleika á að halda sér uppi. Í gær töpuðu þeir fyrir botnliði Þróttar 3-2 í hreint út sagt ótrúlegum leik. Þrátt fyrir markaleysi í fyrri hálfleik var mikið líf í leiknum. Markverðir beggja liða vörðu meistaralega og átti Fjalar Þorgeirsson, markvörður Þróttar, eitt af tilþrifum sumarsins þegar hann varði skot Pauls McShane í horn á undraverðan hátt.Fyrsta mark leiksins kom á 55. mínútu, þá skoraði Halldór Hilmisson með skoti langt utan teigs eftir mistök í vörn Suðurnesjamanna. Gindvíkingar jöfnuðu tuttugu mínútum síðar þegar Paul McShane skoraði úr þröngu færi. Á 82. mínútu komust Þróttarar aftur yfir. Markið var afar umdeilt en Páll Einarsson sem gerði markið lagði boltann greinilega fyrir sig með hendinni. Þegar 90 mínútur voru komnar á vallarklukkuna tók við ótrúlegur kafli. Grindavík jafnaði með marki Roberts Nistroj en aðeins mínútu síðar skoraði Ingvi Sveinsson sigurmark Þróttar. Svo þegar fjórar mínútur voru komnar yfir leiktímann átti Óli Stefán Flóventsson bakfallsspyrnu sem fór rétt yfir markið. Í liði heimamanna var Fjalar mjög góður í markinu og Halldór Hilmisson átti fínan dag á miðjunni. Jens Sævarsson var mjög góður í fyrri hálfleik en það dró af honum þegar líða tók á leikinn. Hjá gestunum var Boban Savic góður í markinu og þeir Óskar Örn Hauksson og Robert Nistroj síógnandi. Nú verða leikmenn Grindavíkur að spýta í lófana og sigra nágranna sína í Keflavík og treysta á að ÍBV og Fram vinni ekki sína leiki. Grindavík er eina liðið í sögu efstu deildar sem aldrei hefur fallið. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, hefur enn trú á að liðið haldi sér. "Það var alveg hræðilegt að fá þetta mark á sig í lokin því stig úr þessum leik hefði verið gott upp á framhaldið. En við í Grindavík ætlum okkur að halda okkur og vonandi vinna hin liðin ekki leiki sína."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Fleiri fréttir Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Sjá meira