Spretturinn kemur of seint 12. september 2005 00:01
KRingar unnu góðan sigur á Valsmönnum á KR-velli í gær, en hann var sá fjórði í röð undir stjórn Sigursteins Gíslasonar sem hefur náð góðum árangri með liðið síðan hann tók við af Magnúsi Gylfasyni á dögunum. Leikurinn á KR-velli í gær var nokkuð skemmtilegur og hugsanlega sá besti sem þar hefur verið spilaður í sumar. Bæði lið sýndu metnað til þess að sækja og fyrir vikið litu mörg úrvalsfæri dagsins ljós. KR nýtti aftur á móti sín færi og þar lá munurinn á liðunum að þessu sinni.Valsmenn voru ívið grimmari og ákveðnari framan af fyrri hálfleiknum. Garðar Gunnlaugsson og Guðmundur Benediktsson komust báðir nærri því að skora en höfðu ekki heppnina með sér. Það var því örlítið kjaftshögg þegar Grétar Ólafur skoraði glæsimark með skoti fyrir utan teig en það kom nokkuð gegn gangi leiksins. Síðari hálfleikur var mjög líflegur og mikið gekk á. Bæði lið sköpuðu sér fín færi í hálfleiknum en enginn fékk betri eða fleiri færi en Garðar Gunnlaugsson en honum var algjörlega fyrirmunað að koma boltanum í netið. Trekk í trekk stóð hann einn gegn opnu marki KR en hann lét annað hvort Kristján verja eða skaut yfir markið.Grétar kórónaði síðan góðan leik sinn í uppbótartíma þegar hann kláraði stórglæsilega sókn KR með þrumuskoti. Rógvi Jacobsen á reyndar stóran hluta í markinu enda var stoðsending hans til Grétars stórglæsileg.Fjórði sigur KR í röð því staðreynd og örugglega var það skrítið fyrir þjálfarann, Sigurstein, að heyra að KR hefði ráðið annan mann í starfið en Sigursteinn mun verða Teiti til aðstoðar. Stjórnarmenn KR hljóta aftur að móti að naga sig í handarbökin fyrir að hafa ekki rekið Magnús Gylfason fyrr úr starfi því allt annar bragur hefur verið á liðinu síðan Magnús hvarf úr brúnni og Sigursteinn hefur náð að láta liðið spila þann bolta sem það á klárlega að gera í hverjum leik.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Drykkjulæti trufluðu leik á Wimbledon Sport Sá óheppnasti enn á ný óheppinn Sport Frá Midtjylland til Newcastle Fótbolti Heimir mjög ósáttur við dómarann: „Þetta er bara dýfa“ Sport Dreymdi um dans og söng inni í klefa: „Erfitt að koma í orð hvernig manni líður“ Fótbolti Þóttist vera með krabbamein með iPhone snúru upp í nefinu Sport Dagskráin í dag: Blikar í Meistaradeildinni Sport Féllu á lyfjaprófi vegna gúmmíkurls í gervigrasinu Fótbolti Szczesny ekki hættur enn Fótbolti Elanga að ganga til liðs við Newcastle Fótbolti Fleiri fréttir Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Sá óheppnasti enn á ný óheppinn Dagskráin í dag: Blikar í Meistaradeildinni Drykkjulæti trufluðu leik á Wimbledon Frá Midtjylland til Newcastle Dreymdi um dans og söng inni í klefa: „Erfitt að koma í orð hvernig manni líður“ Heimir mjög ósáttur við dómarann: „Þetta er bara dýfa“ Vörn Grindavíkur áfram hriplek Endurkomujafntefli heldur Portúgölum á lífi Elanga að ganga til liðs við Newcastle Szczesny ekki hættur enn Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Heimsmeistararnir í ham gegn Belgíu Ellefu reiðhjólum stolið frá Cofidis liðinu 47 ára boxhetja snýr aftur í hnefaleikahringinn Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Heppni hafi skilað sigri á „of árásargjörnum Íslendingum“ Kláraði sjötíu pylsur á tíu mínútum Blikarnir í beinni frá Albaníu Miðasala FIFA gagnrýnd: Einn borgar 60 þúsund en annar 1.300 fyrir eins miða Mun taka stöðuna með fólkinu sem ræður hjá KSÍ Ungur Njarðvíkingur fékk hjálp frá systur sinni til að heiðra minningu Jota Finna stuðning hver hjá annarri: „Fólki má bara finnast það sem það vill“ KR semur við ungan bandarískan framherja Sveindísi var enginn greiði gerður Aron ráðinn til FH Ísold vann veðmálið örugglega og sendi Aron út í sjó Landsliðskonurnar neita að æfa Heitt undir Þorsteini: Þetta eru enn ein vonbrigðin núna Sjá meira