Tággrönn áður en hún fékk sér bíl 21. september 2005 00:01
Helga Braga flutti stutta framsögu á fundi sem efnt var til í hádeginu í gær vegna samgönguviku í Reykjavík. Þar lýsti hún því að móðir hennar hefði aldrei átt bíl og væri tággrönn fyrir vikið. "Og þannig var ég áður en ég fékk mér bíl," sagði Helga Braga og uppskar hlátrasköll. Vinnu sinnar vegna þurfti hún að kaupa sér bifreið en áður ferðaðist hún um á strætó og tveimur jafnfljótum og sameinaði þannig að komast á milli staða og halda sér í formi. Nú fer hún allra sinna ferða á bílnum; "nema um daginn þegar ég tók mig til og fór í göngutúr - út í sjoppu," sagði hún og aftur var hlegið. Á fundinum var meðal annars fjallað um mismunandi samgöngumáta og áhrifin á heilsuna. Björn Leifsson líkamsræktarfrömuður sagði Íslendinga duglega að hreyfa sig og benti á að um tíu þúsund manns stundi líkamsrækt í Laugum, þar sem fundurinn var haldinn. "En hér vilja allir leggja við dyrnar," sagði Björn og fannst það skjöta skökku við að fólk sem kæmi í húsið til að hreyfa sig setti fyrir sig að ganga svolítinn spöl. Ástæða þess væri hins vegar einföld - veðrið. "Fólk fer inn í sólskini en kemur út í haglél og hárgreiðslan fýkur út í veður og vind." Björn hefur löngum hvatt til hreyfingar og hollra lífshátta og horfir lengra en í eigin rann í þeim efnum. Á fundinum ítrekaði hann fyrri hugmynd sína þess efnis að Orkuveitan og Reykjavíkurborg hiti upp göngu- og hjólreiðastíga borgarinnar svo um þá megi fara allan ársins hring. Veit hann sem er að eitthvað kostar slík framkvæmd og stakk hann upp á að Orkuveitan hætti tilraunum sínum við risarækjueldi og verði peningum fremur til hitunar stíganna. Sverrir Björnsson, auglýsingagerðarmaður í Hvíta húsinu, sagði samfélagið hannað fyrir bíla og þar réði hinn hraði lífsstíll landsmanna mestu. Hann rifjaði upp þjóðsöguna um að eigendur stórra jeppa væru ekki síst að ýta undir karlmennskuímynd sína og að samhengi væri á milli stærðar jeppans og limsmæðar viðkomandi. Sjálfur viðurkenndi hann jeppaeign en skýrði hana með skíðaáhuga.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira