Portus Group með vinningstillögu 21. september 2005 00:01
Portus Group, sem er í eigu Landsafls hf., Nýsis hf. og Íslenskra aðalverktaka hf., er með vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels við Austurhöfnina í Reykjavík samkvæmt niðurstöðu matsnefndar og sérfræðinga Austurhafnar-TR. Þetta var kynnt við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag sem og sú ákvörðun stjórnar Austurhafnar-TR að ganga til samninga um verkefnið við Portus Group. Í tilkynningu frá Austurhöfn TR kemur fram að Ólafur Elíasson hafi að miklu leyti hannað útlit hússins og Vladímír Ashkenazy er sérlegur listrænn ráðgjafi Portus Group varðandi dagskrá fyrstu árin. Valið á loksprettinum stóð á milli tilboðs Portus Group annars vegar og Fasteignar/Klasa, hins vegar. Til að meta tilboðin og tillögurnar var komið upp sérstakri matsnefnd sem skipuð var þeim Stefáni Baldurssyni, Kristrúnu Heimisdóttur og Orra Haukssyni. Þeim til aðstoðar við mat á tillögunum voru undirnefndir, ráðgjafar og sérfræðingar. Í umsögn matsnefndarinnar sem Stefán Baldursson, fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri, kynnti í Þjóðmenningarhúsinu í dag, kom fram að mjótt hefði verið á munum milli lokatilllagnanna enda valið staðið á milli tveggja glæsilegra lausna. Á endanum fór þó svo að vinningstillaga Portus Group hlaut hæstu einkunn í fimm af átta matsflokkum, þ.e. byggingarlist, lausn á rekstri bílastæða, fyrir viðskiptaáætlun, fyrir fjárhagslegan og stjórnunarlegan styrk og fyrir metnaðarfulla dagskrá og starfsemisáætlun. Tilboð Portus Group miðast við að stofnkostnaður við tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðina verði rúmlega 12 milljarðar króna og um níu milljarðar hjá Fasteign/Klasa en endurskoðuð kostnaðaráætlun Austurhafnar-TR gerði ráð fyrir að stofnkostnaður gæti orðið um 8,5 milljarðar að meðtöldum kostnaði við bílastæði og lóð. Þrátt fyrir hærri stofnkostnað miðast bæði tilboðin eftir sem áður við að árlegt framlag eigenda Austurhafnar, þ.e. ríkis og borgar, verði að hámarki 600 milljónir króna á ári á samningstímanum, eins og áður hafði verið ákveðið. Samkvæmt tillögu Portus Group verður tónlistar- og ráðstefnubyggingin staðsett austarlega á byggingarlóðinni. Að hluta til stendur húsið á landfyllingu, sem gerð verður í Austurbugtinni þar sem hafnarbakkinn verður færður fram. Samanlögð stærð tónlistarhússins og ráðstefnumiðstöðvarinnar er um 23.000 fermetrar og mun byggingin m.a. rúma tónleikasal sem tekur 1.800 manns í sæti, tvískiptanlegan ráðstefnusal með 750 sætum, kammermúsíksal með 450 sætum og minni sal/aðstöðu fyrir 180-200 áheyrendur. Einnig er gert ráð fyrir hótelbyggingu sem verður álíka stór og tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðin og er hún staðsett á vesturhluta lóðarinnar. Þá felur tillagan einnig í sér stórkostlega uppbyggingu á aðliggjandi lóðum, sem vinningshafinn kaupir byggingarrétt á og fær að byggja á fyrir eigin reikning. Alls nemur heildarbyggingarmagnið sem tillagan nær til yfir 80.000 fermetrum og mun uppbyggingin gjörbreyta miðborg höfuðborgarinnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Sjá meira