Embætti sé í höndum óhæfra manna 21. september 2005 00:01 MYND/Róbert
Össur Skarphéðinsson alþingismaður vill að æðstu menn Ríkislögreglustjóra verði settir af vegna slælegrar frammistöðu í Baugsmálinu og málverkafölsunarmálinu. Össur segir á heimasíðu sinni að í kjölfar þess að Héraðsdómur vísaði Baugsmálinu frá í heild sinni, þar sem ákærurnar hafi verið ótæk moðsuða, verði dómsmálaráðhera að taka í taumana því það sé á hans ábyrgð að stofnanir ráðuneytisins séu ekki í höndum fúskara. Össur segir að stjórn embættis Ríkislögreglustjóra sé augljóslega í slíkum molum að það sé ekki boðlegt í réttarríki. Hann rifjar upp það sem hann kallar klúðrið í stóra málverkafölsunarmálinu þar sem fokdýr rannsókn hafi engu skilað fyrir klaufaskap og segir að ekki sé séð fyrir endann á kostnaði við fúskið í Baugsmálinu. Össur segir að Baugsmálið og myndfölsunarmálið leiði einfaldlega að þeirri niðurstöðu að embætti Ríkislögreglustjóra sé í höndum óhæfra manna. Í öllum eðlilegum réttarríkjum væru þeir nú settir til hliðar og það sé verk sem bíði dómsmálaráðherra ef eitthvað blóð sé í honum. Össur býður fram aðstoð sína á Alþingi við að koma þessum mönnum frá ef þörf krefji.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Innlent Fleiri fréttir Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Sjá meira