Endastöð fyrir Guðmund Hrafnkelsson 19. október 2004 00:01 "
Landsliðsþjálfarinn hafði samband við mig og tilkynnti mér að ég yrði ekki valinn í landsliðið fyrir mótið í Svíþjóð," segir Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður og leikjahæsti maður íslenska landsliðsins í handbolta. Nýráðinn landsliðsþjálfari, Viggó Sigurðsson, hyggst velja lið sitt fyrir World Cup í Svíþjóð sem fram fer innan skamms og hefur þegar útilokað Guðmund. Telja margir að með þessu sé ferli þessa tæplega fertuga markvarðar endanlega lokið með landsliðinu en Guðmundur hefur undanfarið leikið með þýska liðinu Kronau-Östringen. Sigurður Sveinsson, fyrrverandi handboltahetja og samherji Guðmundar til margra ára, er sammála því mati. "Ég tel lítinn vafa leika á því að þetta táknar endalokin fyrir Guðmund vin minn í marki landsliðsins. Hitt er svo annað mál að hann á skilið að fá hvíldina enda hefur hann staðið vaktina með mikilli prýði í langan tíma. Ég tel að með þessu sé Viggó að fylgja því eftir sem hann hefur sagt að það verði breytingar á landsliði Íslands undir hans stjórn og yngri leikmenn fái að spreyta sig." Viggó Sigurðsson vildi aðspurður ekki staðfesta að hafa útilokað Guðmund frá landsliðinu í næstu keppni. "Ég tilkynni hópinn þann 11. nóvember og svara engu fyrir þann tíma. Ég er bæði búinn að skoða og ræða við fjölmarga undanfarið. Bæði þá sem hafa verið í liðinu og eins hina sem hafa ekki komið nálægt landsliðinu áður og það er allt opið eins og sakir standa." Guðmundur sjálfur er þó ekki ósáttur við að vera ekki valinn enda kappinn búinn að spila yfir 400 landsleiki á sinni tíð. "Ég hef skilað mínu með landsliðinu og þessi tilkynning kom ekkert sérstaklega á óvart. Það eru því engin sérstök vonbrigði og nú get ég einbeitt mér betur með mínu félagsliði."
Íþróttir Mest lesið Lætur drauminn rætast og opnar kínverskan veitingastað Sport „Hann sér framtíðina fyrir sér hjá Napoli“ Fótbolti Fyrirliðinn áreitti dómara og mátti ekki spila lokaleikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í enska boltanum og átta manna úrslit í pílunni Sport Fílabeinsstrendingar tryggðu toppsætið í uppbótartíma Fótbolti „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Enski boltinn Fjölskylda skíðakappans fær ekki svör fyrr en í mars Sport „Feginn að þú lifðir krabbameinið af svo þú gætir séð skítaliðið þitt fara niður“ Handbolti Mbappé þurfti að játa sig sigraðan Fótbolti Fleiri fréttir Fjölskylda skíðakappans fær ekki svör fyrr en í mars Dagskráin í dag: Stórleikir í enska boltanum og átta manna úrslit í pílunni Fílabeinsstrendingar tryggðu toppsætið í uppbótartíma Lætur drauminn rætast og opnar kínverskan veitingastað Sjáðu allt það besta úr enska boltanum á árinu 2025 Fyrirliðinn áreitti dómara og mátti ekki spila lokaleikinn „Hann sér framtíðina fyrir sér hjá Napoli“ Heimsmeistarinn ekki hrifinn af HM yfir jólahátíðina Mbappé þurfti að játa sig sigraðan Alveg sama um úrvalsdeildina og ætlar í veiði eftir HM Jókerinn fer jákvæður inn í nýja árið Alls ekki síðasti leikur Semenyo Segir dómarana bara hafa verið að giska Stuðningsmaður stendur heilu leikina eins og stytta „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ „Feginn að þú lifðir krabbameinið af svo þú gætir séð skítaliðið þitt fara niður“ Mest lesið í innlenda sportinu: Danskar bullur, oddaleikur á Króknum og miskátir hlauparar Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Dagskráin í dag: Árið gert upp í Sportsíldinni Farin frá Braga eftir aðeins hálft ár Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Anderson henti Van Gerwen úr leik Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik Senegal vann riðilinn en missti Koulibaly í bann Barnastjarna á Álftanesið Einar Bragi og félagar áfram á toppnum Fara inn í nýja árið á toppnum Sjá meira